
atNorth
atNorth hefur frá 2009 verið brautryðjandi í hönnun, uppbyggingu og rekstri hátæknigagnavera á Íslandi, Svíþjóð, Finnlandi og Danmörku. Meðal viðskiptavina atNorth eru alþjóðleg fyrirtæki og stofnanir sem starfa í fjölmörgum greinum, svo sem við rannsóknir, í heilbrigðisgeiranum, í fjármálaiðnaði og veðurfræði, sem nýta þjónustu atNorth til þess að vinna gögn með hámarks afköstum á hagkvæman og umhverfisvænan hátt.
Með staðsetningu gagnavera atNorth á Norðurlöndunum getur fyrirtækið nýtt umhverfisaðstæður svo sem loftslag og nýtingu hita sem myndast í gagnaverunum til að ná fram betri orkunýtingu en þekkist annars staðar við rekstur gagnavera, ásamt því að knýja gagnaverin með endurnýjanlegri orku. Hringrásarhagkerfið sem byggir á grunni endurnýjanlegrar orku og hagkvæmrar orkunýtingar er haft að leiðarljósi við hönnun gagnavera atNorth.
Höfuðstöðvar atNorth eru í Reykjavík, en fyrirtækið rekur sjö gagnaver á Norðurlöndum. Á árinu 2024 verða tvö ný gagnver tekin í notkun í Finnlandi og Danmörku. Frekari upplýsingar um atNorth er að finna á heimasíðu fyrirtækisins atnorth.com og eins má fylgja atNorth á Linkedin og Facebook.
Tæknimaður með reynslu
atNorth er í áframhaldandi vexti á Akureyri og leitar að tæknimanni með reynslu til starfa í gagnaver sitt.
Þetta er kjörið tækifæri fyrir einstakling sem vill taka þátt í að móta stöðugt vaxandi starfsemi gagnavers atNorth á Akureyri.
atNorth leggur mikinn metnað í að mennta starfsfólk sitt og veita þjálfun í öllu sem viðkemur rekstri gaganvera.
Þetta starf er ráðning til framtíðar og fullt stöðugildi. Starfið hentar öllum kynjum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Uppsetning, eftirlit og viðhald á vélbúnaði viðskiptavina í gagnaveri atNorth
- Þátttaka í uppfærslu verkferla og stöðugum endurbótum verkferla og vinnulags
- Þjónusta við viðskiptavini og úrlausnir beiðna
- Viðhalda varahlutalager á tölvubúnaði, samskipti við framleiðendur
- Þáttaka í greiningu og viðgerð tölvu- og netbúnaðar viðskipavina
Menntunar- og hæfniskröfur
- Nám eða reynsla sem nýtist í starfi svo sem tölvuviðgerðir eða sambærileg kunnátta á vélbúnaðarsviði
- Haldgóð þekking og reynsla af upplýsingatækni
- Sjálfstæði, lausnamiðað viðhorf og greinandi hugsun
- Skipulagshæfni og geta til að vinna í fjölbreyttum verkefnum
- Framúrskarandi hæfni í samvinnu og samskiptum
- Mikill vilji til að læra og þróast í starfi
- Góð enskukunnátta
- Hreint sakavottorð
- Hreinlæti og snyrtimennska
Helstu kostir þess að vinna hjá atNorth
- Við tryggjum að þú fáir viðeigandi þjálfun, símenntun og aðgang að þekkingu varðandi rekstur gagnavera
- Heilsumiðað hugarfar með markmið um jafnvægi starfs og einkalífs
- Íþróttastyrkur til rækta líkama og sál
- Skemmtinefnd sem heldur stuðinu gangandi
- Veitingaþjónusta send á vinnustaðinn
- Fjarskiptapakki og símastyrkur
- Alþjóðlegur vinnustaður með fjölmenningu
- Tækifæri til þess að ferðast og kynnast öðrum gagnaverum okkar á Norðurlöndunum
Auglýsing birt6. nóvember 2026
Umsóknarfrestur17. nóvember 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Rangárvellir 150130, 603 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
Mannleg samskiptiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagsfræðingur
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Tæknimaður
Hegas ehf.

Snillingar á Vörubílaverkstæði
Vélaverkstæði Þóris ehf.

Tæknimaður / Maintenance Technician
Alvotech hf

POS Customer Support
Rapyd Europe hf.

Rafvirki eða rafvirkjanemi með reynslu
Rafsveinn ehf

Tæknimaður við myndun fráveitulagna
Stíflutækni

Tæknimaður/verkefnastjóri
Loftorka Reykjavík ehf.

Ráðgjafi í tækni- og notendaþjónustu
Garnes Data

Hugbúnaðarsérfræðingur
Skræða ehf

Sérfræðingur í Microsoft lausnum
Advania

Ert þú næsta tækniborðshetja Sensa?
Sensa ehf.

Tæknimaður á verkstæði / Raftæki
Raftækjaverkstæðið