
Garnes Data
Garnes Data er tæknifyrirtæki sem er hluti af stærri samstæðu, Garnes Group sem starfar á Íslandi og í Noregi.

Ráðgjafi í tækni- og notendaþjónustu
Garnes Data óskar eftir að ráða öflugan og þjónustulundaðan einstakling í starf ráðgjafa í upplýsingatækni. Ráðgjafi sinnir fjölbreyttum verkefnum, veitir tæknilega þjónustu og ráðgjöf, fylgir eftir verkefnum, veitir þjónustu á vettvangi og byggir upp traust og góð tengsl við viðskiptavini. Að auki mun hann taka þátt í uppbyggingu fyrirtækisins og framtíðarsýn þess.
Starfið hentar einstaklingi sem hefur getu til þess að vinna sjálfstætt og brennandi áhuga á að læra nýja hluti og tileinka sér tækninýjungar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Veita viðskiptavinum notenda aðstoð og tæknilega þjónustu, bæði í fjarþjónustu og á starfsstöðvum þeirra
- Taka á móti þjónustubeiðnum, greina bilanir og fylgja eftir úrlausn mála
- Sinna uppsetningu, viðhaldi og bilanagreiningu á tölvum, vélbúnaði og hugbúnaði
- Veita þjónustu og stuðning í Microsoft-umhverfi
- Aðstoða við rekstur og bilanagreiningu netkerfa
- Styðja fyrirtæki í rekstri á sínu tækniumhverfi
- Byggja upp og rækta traust tengsl við viðskiptavini
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af upplýsingatækniþjónustu, bilanagreiningu og almennum tæknistörfum
- Haldbær reynsla af rekstri og þjónustu á netkerfum, tölvum og öðrum tölvubúnaði
- Góð þekking á Windows og Microsoft 365 er skilyrði
- Reynsla af störfum hjá upplýsingatæknifyrirtæki eða sambærilegu þjónustuumhverfi er kostur
- Viðeigandi tæknimenntun eða fagvottanir
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Auglýsing birt2. nóvember 2026
Umsóknarfrestur15. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Silfursmári 12
Starfstegund
Hæfni
Almenn tæknikunnáttaTölvuöryggiViðskiptasamböndÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Þjónustu- og gæðastjóri | Guest Experience & Quality Manager
Íslandshótel

Laust starf net- og kerfisstjóra á skrifstofu Alþingis
Skrifstofa Alþingis

Sérfræðingur í notendaþjónustu
Fagkaup ehf

Hugbúnaðarsérfræðingur
Skræða ehf

Sérfræðingur í Microsoft lausnum
Advania

Ert þú næsta tækniborðshetja Sensa?
Sensa ehf.

Viltu byggja AI-agenta sem fara í raunverulega notkun?
Fjársýslan

Við leitum að kerfisstjóra!
Myllan

Deildarstjóri stafrænnar verðmætasköpunar
Orka náttúrunnar

Tæknimaður á verkstæði / Raftæki
Raftækjaverkstæðið

Tæknimaður - uppsetning, gangsetning og þjónusta
Thor Ice Chilling Solution

Sérfræðingur notendaaðstoð - deild rafrænnar þjónustu HH
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins