
TÆKNIMAÐUR Í TÆKNIDEILD BVT
Hefur þú gaman af bilanagreiningu, viðgerðum og að finna lausnir?
Bako Verslunartækni leitar að tæknimanni í Tæknideild BVT til að sinna viðgerðum og uppsetningu á stóreldhús- og bakarístækjum. Unnið er bæði á verkstæði okkar og hjá viðskiptavinum.
Við leitum að rafvirkja, vélvirkja, rafeindavirkja eða tæknimanni með almenna viðgerðarreynslu. Góður tæknilegur skilningur, vandvirkni og þjónustulund eru mikilvægir eiginleikar, ásamt hæfni til að vinna sjálfstætt og með öðrum.
Vinnutími er kl. 8–16 mánudaga til fimmtudaga og kl. 8–15 á föstudögum. Starfinu fylgja bakvaktir um helgar.
• Bilanagreining og viðgerðir á stóreldhús- og bakarístækjum.
• Uppsetning tækja og búnaðar.
• Þjónusta á verkstæði og hjá viðskiptavinum.
• Menntun í rafvirkjun, rafvélavirkjun, vélvirkjun eða rafeindavirkjun, eða almenn reynsla af tæknilegum viðgerðum.
• Góður tæknilegur skilningur og lausnamiðuð hugsun.
• Sjálfstæði, vandvirkni og skipulögð vinnubrögð.
• Þjónustulund og góð samskiptahæfni.
• Verkfæri og vinnufatnaður til starfsins.
• Aðgangur að mötuneyti.
Íslenska
Enska










