

Sérfræðingur í teymi þróunar og auðlinda jarðvarma
Vilt þú taka þátt í að móta framtíð endurnýjanlegrar orku?
Við hjá Landsvirkjun vinnum markvisst að því að tryggja sjálfbæra og örugga orkuvinnslu til að mæta þörfum samfélagsins og stuðla að orkuskiptum.
Á sviði vinds og jarðvarma leitum við að metnaðarfullum sérfræðingi til að sinna fjölbreyttum verkefnum við jarðvarmastöðvar og rannsóknir á jarðhitaauðlindum Landsvirkjunar á Norðausturlandi.
Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni á vettvangi og rannsóknarstofu, allt frá sýnatökum og mælingum til gagnagreiningar og jarðefnafræðilegs eftirlits.
Þú verður hluti af þverfaglegu teymi sem vinnur að vöktun, rannsóknum og sjálfbærri nýtingu jarðhitaauðlinda. Skrifstofuaðstaða og rannsóknarstofa er í Kröflustöð en hægt er að sinna hluta starfsins í fjarvinnu frá öðrum starfstöðvum Landsvirkjunar.
Hvað felst í starfinu?
- Að annast sýnatökur og mælingar í gufuveitum aflstöðva og á jarðhitasvæðum Landsvirkjunar
- Að greina sýni, túlka niðurstöður og sinna efna- og jarðefnafræðilegu eftirliti
- Að greina frávik og vinna að þróun og umbótum á mæliaðferðum og verklagi
- Að hafa umsjón með mælitækjum, kvörðunum og gæðaskráningu
- Að sinna rannsóknarstofuvinnu og rekstri rannsóknarstofu
Hefur þú eftirfarandi hæfni og reynslu?
- Háskólamenntun í efnafræði, jarðefnafræði eða skyldu fagi svo sem verkfræði sem nýtist við reiknilíkanagerð eða gagnagreiningu
- Þekkingu á tölulegum aðferðum, gagnavinnslu og forritun og reynsla af meðhöndlun stórra gagnasafna er kostur
- Reynslu af sambærilegum verkefnum, mælitækjum eða rannsóknarstofuvinnu
- Brennandi áhuga á jarðhita, mælingum og greiningu gagna
- Nákvæm og skipulögð vinnubrögð með ríka áherslu á öryggismál
- Góða greiningarhæfni og getu til að leysa tæknileg viðfangsefni
- Hæfni til að vinna sjálfstætt jafnt sem í samstarfi við aðra
Hvernig vinnustaður er Landsvirkjun?
Landsvirkjun er orkufyrirtæki í eigu íslensku þjóðarinnar sem vinnur rafmagn úr endurnýjanlegum orkugjöfum, vatnsafli, jarðvarma og vindi. Við leggjum áherslu á fagmennsku, sjálfbærni og stöðugar umbætur. Við styðjum við starfsfólk okkar með símenntun, sveigjanleika og góðu starfsumhverfi þar sem jafnrétti, traust og samvinna eru í forgrunni.
Hljómar þetta spennandi?
Sendu okkur umsókn með ferilskrá og kynningarbréfi þar sem þú segir frá reynslu þinni og hvað kveikir áhuga þinn á starfinu. Fyrirspurnir má senda á netfangið [email protected].











