

Sérfræðingur í pökkun
Coripharma leitar að sérfræðingi í pökkunardeild á framleiðslusviði.
Við leitum að einstaklingi með góða þekkingu á GMP-kröfum og gæðakerfum, sterka greiningarhæfni, frumkvæði og hæfni til að leiða verkefni til árangurs. Reynsla úr lyfjaiðnaði er æskileg og sömuleiðis reynsla af störfum í gæða- og/eða framleiðsluumhverfi.
Sérfræðingurinn mun annast fjölbreytt verkefni og er í daglegum samskiptum við teymið í pökkun sem og aðrar deildir innan fyrirtækisins. Verkefni sérfræðings tengjast bæði undirbúningi og stuðningi við pökkun lyfja, bæði fyrir eigin lyfjaþróun og í framleiðslu fyrir þriðja aðila (contract manufacturing).
Helstu verkefni og ábyrgð
- Undirbúningur gagna fyrir lyfjapökkun
- Uppsetning pökkunarmastera (Master Data)
- Móttaka, skráning og greining frávika sem koma upp í pökkunarferlum
- Vinnur að ferla- og umbótaverkefnum (CAPA, stöðugar umbætur)
- Gerð skriflegra leiðbeininga og þjálfunarefnis fyrir pökkunardeild
- Þátttaka í úttektum innri og ytri aðila
- Þátttaka í þróunarverkefnum og undirbúningur m.a. fyrir prófanir á nýjum búnaði og pökkun á nýjum lyfjum, umbúðategundum og pakkningarstærðum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun á sviði raungreina, lyfjafræði, verkfræði eða sambærilegu fagsviði
- Reynsla af störfum innan lyfjaiðnaðar er æskileg
- Reynsla af störfum í gæða- og/eða framleiðsluumhverfi er æskileg
- Góð þekking á GMP og kröfum sem gerðar eru til lyfjaframleiðslu
- Reynsla af innleiðingu á nýjum tækjabúnaði er kostur.
- Reynsla af frávikameðhöndlun, CAPA-ferlum og umbótaverkefnum er kostur
- Nákvæmni, skipulagshæfni og frumkvæði
- Góð greiningar- og úrlausnahæfni
- Fagleg samskiptafærni og hæfni til samstarfs þvert á deildir
- Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
- Góð tölvukunnátta
Fríðindi
- Sveigjanlegur vinnutími
- Mötuneyti
Coripharma er íslenskt nýsköpunarfyrirtæki í örum vexti sem sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og útflutningi samheitalyfja. Hjá Coripharma starfar fjölbreyttur hópur einstaklinga með ólíka menntun og bakgrunn. Í dag starfa um 230 einstaklingar hjá fyrirtækinu.
Frá því félagið hóf starfsemi árið 2018 hefur það hafið framleiðslu á 26 lyfjum og er með 21 ný lyf í þróun. Nánari Upplýsingar um Coripharma má finna á www.coripharma.is
Með umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd.
Umsóknarfrestur er til og með 15. nóvember 2026
Íslenska
Enska










