

Ert þú leiðtoginn sem við leitum að?
Vistor leitar að metnaðarfullum markaðsstjóra til að stýra einni af markaðsdeildum fyrirtækisins.
Markaðsstjóri leiðir öflugt teymi sérfræðinga og ber ábyrgð á daglegum rekstri deildarinnar, stefnumótun og áframhaldandi þróun markaðsstarfs. Hlutverkið felur í sér að skapa skýra stefnu, forgangsraða verkefnum og tryggja að markmið deildarinnar styðji við stefnu Vistor og birgja.
Við leitum að leiðtoga sem hefur skýra framtíðarsýn, þekkir lyfjamarkaðinn og hefur metnað til að þróa bæði teymið og starfsemi deildarinnar áfram. Markaðsstjóri er hluti af stjórnendateymi Vistor og heyrir beint undir framkvæmdastjóra.
- Leiða daglegan rekstur deildarinnar og bera ábyrgð á árangri, starfsumhverfi og áframhaldandi þróun hennar
- Stýra, styðja og þróa öflugt teymi með reglulegri endurgjöf og markmiðasetningu
- Bera ábyrgð á markaðssetningu lyfja ásamt mótun á stefnu og markmiðum fyrir vörumerki og birgja deildarinnar
- Móta, framkvæma og fylgja eftir markaðs- og kostnaðaráætlunum með áherslu á árangur og hagkvæmni
- Byggja upp og viðhalda traustum viðskiptasamböndum við alþjóðlega lyfjabirgja og aðra lykilhagaðila
- Greina tækifæri á markaði og stuðla að áframhaldandi þróun og vexti starfseminnar
- Innleiða tækninýjungar og framfaraverkefni, þar á meðal nýtingu gervigreindar og annarra lausna til að bæta árangur og vinnulag
- Taka virkan þátt í stjórnendateymi Vistor og stefnumótandi verkefnum
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Þekking á lyfjamarkaði og íslensku heilbrigðiskerfi
- Hæfni til að leiða og hvetja fólk[ÞÞ1.1][BÓ1.2]
- Reynsla af markaðs- og sölumálum
- Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni
- Sterk skipulagshæfni og hæfni til að forgangsraða og fylgja verkefnum eftir
- Frumkvæði, drifkraftur og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Viðskiptalegur skilningur og hæfni til að sjá tækifæri til þróunar og aukins árangurs
- Jákvætt, lausnamiðað og hvetjandi hugarfar
Umsóknarfrestur er til og með 8. nóvember 2026
Nánari upplýsingar um starfið veita Þórður Arnar Þórðarson, framkvæmdastjóri, [email protected] og Birkir Svan Ólafsson, mannauðsstjóri, [email protected]
Umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf þar sem fram koma ástæður þess að sótt er um starfið og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi til starfsins.
Vistor hf. er leiðandi fyrirtæki á sviði markaðssetningar á lyfjum og heilsuvörum á Íslandi. Hjá fyrirtækinu starfa um 50 einstaklingar. Fyrirtækið er samstarfsaðili fjölmargra alþjóðlegra lyfjafyrirtækja og veitir þeim þjónustu við skráningar, sölu- og markaðsmál og klínískar rannsóknir, auk þess að hafa milligöngu um innflutnings- og dreifingarstarfsemi
Íslenska
Enska










