Samgöngustofa
Samgöngustofa

Sérfræðingur í siglingavernd

Ertu með sterka verndarvitund?

Siglingasvið Samgöngustofu leitar að öflugum einstaklingi í fjölbreytt og spennandi framtíðarstarf á sviði siglingaverndar.

Starfið felur í sér tækifæri til að byggja upp sérþekkingu á sviði sem er í mikilli þróun. Við leggjum áherslu á góða þjálfun og starfsþróun og starfið getur því hentað bæði nýútskrifuðum sem og reynslumeiri einstaklingum sem hafa áhuga á að sérhæfa sig á sviði siglingaverndar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Gerð áhættumata fyrir hafnaraðstöður og hafnir. 
  • Eftirlit með gerð og viðhaldi verndaráætlana fyrir hafnaraðstöður, hafnir og skip.
  • Útgáfa staðfestinga á áhættumati og verndaráætlunum fyrir hafnaraðstöður, hafnir og skip. 
  • Úttektir á framkvæmd siglingaverndar hjá eftirlitsskyldum aðilum þ.e. höfnum, skipum og skipafélögum og eftir atvikum hjá öðrum fyrirtækjum og aðilum sem koma að siglingavernd.
  • Þátttaka í samstarfi með yfirvöldum, stofnunum og viðbragðsaðilum á Íslandi sem hafa hlutverki að gegna vegna siglingaverndar (ríkislögreglustjóra, staðarlögreglu, tollgæslu, Landhelgisgæslu og öðrum).
  • Þátttaka í innlendu og alþjóðlegu samstarfi á sviði siglingaverndar, svo sem hjá IMO, European Commission og EMSA. Tengiliður vegna siglingaverndar við alþjóðastofnanir og Eftirlitsstofnun EFTA.
  • Gerð og viðhald Siglingaverndaráætlunar Íslands
  • Gerð og viðhald áhættumats vegna innanlandssiglinga
  • Þátttaka í gerð kennsluefnis og leiðbeininga til verndarfulltrúa og annarra hagsmunaaðila
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf á sviði lögreglufræði, lögfræði, öryggis- og áhættustjórnun, opinberri stjórnsýslu eða tengdu námi
  • Þekking á öryggis- og gæðastjórnun og netöryggismálum
  • Reynsla á sviði hlítni/hlítnieftirliti, löggæslu eða tollgæslu æskileg
  • Þekking á íslenskum og alþjóðlegum siglingamálum kostur
  • Mjög góð tölvukunnátta
  • Góð færni í íslensku og ensku, bæði í töluðu og rituðu máli er skilyrði
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð samskipta- og samstarfshæfni og frumkvæði og áhugi á að byggja upp sérþekkingu á sviðinu
Fríðindi í starfi
  • Sveigjanlegt vinnufyrirkomulag.
  • Góða þjálfun og stuðning við uppbyggingu sérþekkingar.
  • Tækifæri til faglegrar þróunar og símenntunar.
  • Fjölbreytt og krefjandi verkefni í alþjóðlegu umhverfi.
  • Góðan starfsanda og öflugt teymi sérfræðinga.
Auglýsing birt16. nóvember 2026
Umsóknarfrestur30. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Ármúli 2, 108 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar