Lyfjastofnun
Lyfjastofnun

Lögfræðingur

Lyfjastofnun leitar að öflugum lögfræðingi til fjölbreyttra og krefjandi verkefna, með sérstaka áherslu á persónuvernd og upplýsingaöryggi. Starfið felur meðal annars í sér að gegna hlutverki persónuverndarfulltrúa stofnunarinnar, hafa umsjón með og samræma verkefni á sviði upplýsingaöryggis, auk almennrar lögfræðilegrar ráðgjafar og úrlausnar stjórnsýslulegra mála.
Um 100% starf er að ræða og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.


Helstu viðfangsefni og ábyrgð:

  • Hlutverk persónuverndarfulltrúa, þar á meðal ráðgjöf, eftirlit og eftirfylgni með persónuverndarmálum.
  • Umsjón og ábyrgð á verkefnum á sviði upplýsingaöryggis.
  • Almenn lögfræðileg ráðgjöf og úrlausn stjórnsýslulegra álitaefna.
  • Undirbúningur og yfirferð ákvarðana, umsagna, samninga og annarra lögfræðilegra gagna.
  • Fræðsla og miðlun þekkingar innan stofnunarinnar.


Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Embættispróf eða meistarapróf í lögfræði er skilyrði.
  • Þekking á stjórnsýslurétti og reynsla af lögfræðistörfum innan opinberrar stjórnsýslu er skilyrði.
  • Góð þekking á persónuverndarlöggjöf og reynsla af beitingu hennar er skilyrði.
  • Þekking á upplýsingaöryggi, ISO 27001 og kröfum NIS2 er kostur.
  • Þekking á Evrópurétti er kostur.
  • Hæfni til að greina lögfræðileg álitaefni og setja fram skýrar og rökstuddar niðurstöður.
  • Mjög góð íslenskukunnátta og góð enskukunnátta í ræðu og riti.
  • Góð samskipta- og samstarfshæfni.
  • Skipulögð og nákvæm vinnubrögð, frumkvæði og hæfni til sjálfstæðra starfa.


Hlutverk Lyfjastofnunar er að tryggja öryggi landsmanna með greiðu aðgengi að lyfjum og lækningatækjum, faglegri þjónustu og hlutlausri upplýsingagjöf byggðri á nýjustu þekkingu. Helstu hlutverk hennar eru að gefa út markaðsleyfi fyrir lyf á Íslandi í samvinnu við lyfjayfirvöld á Evrópska efnahagssvæðinu, hafa eftirlit með lyfjafyrirtækjum og heilbrigðisstofnunum á Íslandi, meta gæði og öryggi lyfja og tryggja faglega upplýsingagjöf um lyf til heilbrigðisstarfsfólks og neytenda. Hjá Lyfjastofnun vinna um 70 starfsmenn. Lyfjastofnun leggur áherslu á gott vinnuumhverfi, starfsþróun og framfylgir stefnu um samræmingu fjölskyldulífs og vinnu. Gildi Lyfjastofnunar eru gæði – traust – þjónusta. Sjá nánari upplýsingar um Lyfjastofnun á vef stofnunarinnar www.lyfjastofnun.is.

Umsóknarfrestur er til og með 16. nóvember 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Lyfjastofnun hefur hlotið jafnlaunavottun og eru laun samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðuneytis og hlutaðeigandi stéttarfélags. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Nánari upplýsingar veitir Thelma Kristín Kvaran ([email protected]) í síma 511 1225.

Auglýsing birt30. október 2026
Umsóknarfrestur16. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Vínlandsleið 12-14, 113 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar