Vörður tryggingar
Vörður tryggingar
Vörður tryggingar

Sérfræðingur í forvörnum og öryggismálum fyrirtækja

Hefur þú brennandi áhuga á öryggi og forvörnum?

Við leitum að öflugum sérfræðingi sem vill taka þátt í að efla forvarnastarf og öryggismenningu hjá viðskiptavinum Varðar. Við viljum ráða til okkar einstakling sem á auðvelt með að skapa traust, miðla þekkingu og hefur brennandi áhuga á forvarnar- og öryggismálum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Leiða og þróa forvarnastarf Varðar

  • Veita fyrirtækjum ráðgjöf um forvarnir, áhættumat og öryggismál

  • Framkvæma forvarnarúttektir og áhættumat í samstarfi við viðskiptavini

  • Fræða og þjálfa starfsfólk og viðskiptavini

  • Vera öflugur samstarfsaðili viðskiptastjóra í áhættumati og forvarnarvinnu

  • Miðla þekkingu um forvarnir, meðal annars með fræðslu og greinarskrifum

  • Byggja upp öflugt samstarf við innri og ytri aðila á sviði forvarna

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun á sviði öryggis, tækni-, verkfræði eða áhættuvísinda. Eða önnur menntun sem nýtist í starfi

  • Góð samskiptafærni og ánægja af því að vinna með fólki

  • Geta til að miðla þekkingu á skýran, lifandi og sannfærandi hátt

  • Reynsla eða þekking á sviði forvarna eða öryggismála

  • Hæfni í að vinna með gögn og framkvæma greiningar út frá þeim

  • Sjálfstæð vinnubrögð og drifkraftur

  • Þjónustulund, lausnamiðaður hugsunarháttur og vilji til að tileinka þér nýja þekkingu

Auglýsing birt30. október 2026
Umsóknarfrestur8. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Borgartún 19, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.Framkoma/FyrirlestarPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar