TM
TM
TM

Tjónafulltrúi Ökutækjatjóna

Það er okkur hjá TM kappsmál að veita framúrskarandi ráðgjöf og þjónustu. Við leitum að öflugum og þjónustulunduðum einstaklingi til liðs við ökutækjatjónadeild TM.

Starfið er fjölbreytt og felur meðal annars í sér mat á bótaskyldu og sakarskiptingu vegna umferðaróhappa, afgreiðslu ökutækjatjóna og samskipti við viðskiptavini og samstarfsaðila. Við leitum að einstaklingi sem hefur góða greiningarhæfni, ríka þjónustulund og vinnur af nákvæmni og fagmennsku.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Mat á bótaskyldu og sakarskiptingu vegna umferðaróhappa.
  • Skráning, vinnsla og afgreiðsla ökutækjatjóna.
  • Gagnaöflun, útreikningar og uppgjör tjónabóta.
  • Samskipti og ráðgjöf til viðskiptavina og samstarfsaðila.
  • Önnur verkefni sem tengjast úrlausn ökutækjatjóna.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Framúrskarandi þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum.
  • Góð greiningarhæfni og hæfni til að taka sjálfstæðar og rökstuddar ákvarðanir.
  • Góð almenn tölvukunnátta og góð íslenskukunnátta.
  • Sjálfstæð, nákvæmni og fagleg vinnubrögð.
  • Hæfni til að vinna vel í hópi og undir álagi.
  • Jákvætt hugarfar, frumkvæði og metnaður til að ná árangri.
  • Stúdentspróf eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
Auglýsing birt30. október 2026
Umsóknarfrestur15. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.NákvæmniPathCreated with Sketch.Samskipti í símaPathCreated with Sketch.Samskipti með tölvupóstiPathCreated with Sketch.VandvirkniPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar