TM
TM
TM

Hjúkrunarfræðingur í Áhættumati persónutrygginga

Ert þú hjúkrunarfræðingur sem vilt nýta klíníska þekkingu þína á nýjan hátt?

TM leitar að hjúkrunarfræðingi til starfa í áhættumati persónutrygginga. Við leitum að einstaklingi sem sameinar nákvæmni, góða greiningarhæfni og mannleg samskipti. Starfið hentar sérstaklega vel hjúkrunarfræðingi sem hefur áhuga á að nýta heilbrigðisþekkingu sína á nýjan hátt, utan hefðbundins klínísks starfsumhverfis.

Starfið felur í sér faglegt og sjálfstætt mat á heilsufarsupplýsingum vegna umsókna um persónutryggingar. Við leggjum áherslu á vandað áhættumat og skýra, faglega þjónustu við viðskiptavini og samstarfsaðila. Hér gefst tækifæri til að vinna á sérhæfðu sviði þar sem heilbrigðisþekking, greiningarhæfni og góð þjónusta fara saman.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Móttaka og yfirferð umsókna um persónutryggingar
  • Móttaka og úrvinnsla læknabréfa og heilbrigðisvottorða, ásamt mati á heilsufarsgögnum í samræmi við reglur um áhættumat
  • Samskipti við umsækjendur, lækna og heilbrigðisstarfsfólk
  • Ýmis önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Reynsla af störfum í heilbrigðiskerfinu
  • Góð færni í mati á heilsufarsupplýsingum og áhugi á greiningarvinnu
  • Nákvæmni, sjálfstæði og góð skipulagshæfni
  • Góð samskiptahæfni og þjónustulund
  • Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í ræðu og riti
  • Góð almenn tölvukunnátta
Auglýsing birt30. október 2026
Umsóknarfrestur15. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.NákvæmniPathCreated with Sketch.Samviskusemi
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar