STOÐ
STOÐ
STOÐ

Viðskiptastjóri í hjúkrunarvörum og heilbrigðislausnum

Viltu taka þátt í að efla heilbrigðisþjónustu með sölu og innleiðingu vandaðra lausna? STOÐ leitar að hjúkrunarfræðingi í fjölbreytt og krefjandi starf sem viðskiptastjóri á vaxandi heilbrigðistæknimarkaði.

Við leitum að einstaklingi sem hefur gaman af samskiptum, vill byggja upp sterk tengsl og hefur metnað fyrir árangri og að hafa áhrif. Starfið felur í sér markaðssetningu og sölu á hjúkrunarvörum ásamt uppbyggingu traustra tengsla við heilbrigðisstarfsfólk.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Markaðssetning á hjúkrunarvörum og lækningatækjum til heilbrigðisstofnana
  • Innleiðing á nýjum vörum auk fræðslu og eftirfylgni
  • Tengslamyndun og gott samstarf við viðskiptavini
  • Samskipti við erlenda birgja
  • Greining vaxtartækifæra í verkefnum tengd nýjum spítala
  • Þátttaka á ráðstefnum og fundum innanlands og erlendis
  • Útboðs- og tilboðsgerð
  • Vörustýring og þátttaka í þróun vöruframboðs
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Hjúkrunarfræði eða önnur heilbrigðismenntun er skilyrði
  • Þekking á sölu og markaðsetningu lækningatækja er kostur
  • Reynsla af sambærilegu starfi eða á heilbrigðisstofnunum er kostur
  • Frumkvæði, drifkraftur og jákvætt viðmót
  • Góðir skipulagshæfileikar og metnaður til að ná árangri í starfi
  • Færni í mannlegum samskiptum
  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði
Auglýsing birt23. október 2026
Umsóknarfrestur5. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Dragháls 14-16 14R, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.HjúkrunarfræðingurPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MarkaðsmálPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Sölumennska
Starfsgreinar
Starfsmerkingar