
Söluráðgjafar hjá Gullmarkaðinum
Reynsla þín og samskiptahæfni geta orðið að nýju tækifæri
Gullmarkaðurinn leitar að söluráðgjöfum í fullt starf.
Hefur þú góða reynslu úr atvinnulífinu, gaman af samskiptum og metnað til að ná árangri? Langar þig að læra nýtt og hjálpa fólki að kynnast snertanlegu gulli og silfri sem hluta af eignauppbyggingu?
Við leitum að traustu og sjálfstæðu fólki sem kann að hlusta, byggja upp tengsl og fylgja verkefnum eftir. Reynsla af sölu, þjónustu eða rekstri nýtist vel. Fyrri þekking á eðalmálmum er ekki skilyrði — við veitum markvissa grunnþjálfun.
Starfið
Starfið felst í að kynna og selja snertanlegt gull og silfur og sparnaðarleiðir Auvesta Edelmetalle AG, sem Arcarius ehf. er umboðsaðili fyrir á Íslandi undir vörumerki Gullmarkaðarins.
Helstu verkefni eru að:
· Hafa samband við mögulega viðskiptavini og bóka fundi.
· Greina þarfir og kynna viðeigandi kaupleiðir.
· Útskýra vörur, kostnað og skilmála á skýran og vandaðan hátt.
· Fylgja samtölum eftir og byggja upp langtímasambönd við viðskiptavini.
· Skrá samskipti og næstu skref í viðskiptamannakerfi.
Traust, þekking og persónuleg þjónusta eru undirstaða starfsins.
Við leitum að þér sem
· Býrð yfir lífs- og starfsreynslu og átt auðvelt með að ávinna þér traust.
· Hefur góða hlustunar- og samskiptahæfni.
· Vinnur sjálfstætt og skipulega og fylgir verkefnum eftir.
· Ert tilbúin/tilbúinn að hafa frumkvæði að samskiptum og vinna markvisst að sölu.
· Hefur vilja til að læra og tileinka þér ný kerfi.
· Talar og skrifar góða íslensku.
Við hvetjum sérstaklega fólk með fjölbreytta starfsreynslu, sem vill nýta hana á nýjum vettvangi, til að sækja um.
Þjálfun og verkfæri
Þú færð þjálfun í eðalmálmum, vörum og þjónustu Auvesta, samtalstækni og vinnubrögðum Gullmarkaðarins. Fræðsluefni Gullakademíunnar er hluti af undirbúningnum.
Eitt verkfæra okkar er Lífsráð, sem hjálpar til við að setja upp yfirsýn yfir tekjur, útgjöld og valkosti við starfslok. Það styður samtöl við fólk sem vill undirbúa næsta æviskeið og skoða hvernig gullkaup geta fallið að eigin áætlunum.
Starfskjör og vinnustaður
· Fullt starf.
· Laun eru eingöngu árangurstengd, án fastra grunnlauna. Tekjur ráðast af söluárangri samkvæmt nánar kynntu þóknunarfyrirkomulagi.
· Vinnustaður er í Ármúla 13, 4. hæð, Reykjavík.
· Ráðið verður jafnóðum og þjálfun hefst um leið og fyrsti hópurinn hefur verið valinn.
Umsókn
Sendu ferilskrá og stutta kynningu í gegnum Alfreð. Segðu okkur hvers vegna starfið höfðar til þín og hvernig reynsla þín gæti nýst.
Umsóknarfrestur er til og með 28. október 2026.
Viðtöl fara fram á umsóknartímanum og ráðið verður þegar réttu einstaklingarnir finnast. Umsóknir eru meðhöndlaðar sem trúnaðarmál.
REYNSLA OG SÖLURÁÐGJÖF NAUÐSYNLEG
FRÁBÆR VINNUSTAÐUR OG TOP AÐSTAÐA
Íslenska










