Húsasmiðjan
Húsasmiðjan
Húsasmiðjan

Rekstarstjóri Húsasmiðjunnar og Blómavals í Skútuvogi

Vilt þú leiða þekktustu verslunina okkar inn í framtíðina?

Við leitum að metnaðarfullum og öflugum leiðtoga með brennandi áhuga á verslun og framúrskarandi þjónustu til að leiða sterka liðsheild sem einkennist af gleði, krafti og fagmennsku.

Húsasmiðjan og Blómaval í Skútuvogi er eitt af flaggskipum fyrirtækisins og elsta og þekktasta verslun okkar á höfuðborgarsvæðinu. Verslunin hefur á að skipa öflugu og reynslumiklu starfsfólki og framundan eru spennandi tækifæri til að þróa og efla starfsemina enn frekar.

Rekstrarstjóri er í hópi lykilstjórnenda fyrirtækisins og ber ábyrgð á daglegum rekstri verslunarinnar með það að leiðarljósi að veita framúrskarandi þjónustu, tryggja góða upplifun viðskiptavina og efla sölu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ber ábyrgð á rekstri verslunarinnar.

  • Tryggir framúrskarandi þjónustu til viðskiptavina og að ásýnd verslunarinnar sé ávallt fagleg og snyrtileg.  

  • Byggir upp sterka og jákvæða liðsheild og leiðir starfsfólk með góðu fordæmi.

  • Skapar hvetjandi vinnuumhverfi þar sem gleði, kraftur og fagmennska eru í fyrirrúmi.  

  • Tekur virkan þátt í sölu og þjónustu við viðskiptavini.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Framúrskarandi leiðtogahæfileikar, jákvæðni og kraftur. 

  • Menntun sem nýtist í starfi og/eða góð reynsla og þekking af smásölurekstri og þjónustu. 

  • Framúrskarandi samskiptahæfilekar, rík þjónustulund og metnaður til að ná settum markmiðum með teyminu. 

  • Góð tölvukunnátta.

  • Góð íslensku- og enskukunnátta.

Fríðindi í starfi
  • Afsláttarkjör í verslunum Húsasmiðjunnar, Blómavals og Ískarfts
  • Aðgangur að orlofshúsum
  • Styrkir til heilsueflingar
Auglýsing birt19. október 2026
Umsóknarfrestur3. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Skútuvogur 16, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.SölumennskaPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar