Bako Verslunartækni
Bako Verslunartækni
Bako Verslunartækni

Söluráðgjafi verslana- og vöruhúsalausna

BVT – Bako Verslunartækni leitar að öflugum söluráðgjafa til liðs við söluteymið okkar!

Hefur þú áhuga á sölu, viðskiptatengslum og því að finna lausnir sem skapa raunverulegt virði fyrir viðskiptavini?

Við hjá BVT leitum að metnaðarfullum og lausnamiðuðum einstaklingi í fjölbreytt og spennandi starf við sölu og ráðgjöf á búnaði og heildarlausnum fyrir verslanir, vöruhús og atvinnulífið.

Starfið fellur undir verslunar- og vöruhúsasvið BVT þar sem allt frá minnstu verðmerkingum upp í stærstu vöruhús landsins eru partur af daglegu starfi.

Starfið felur í sér náið samstarf við viðskiptavini, birgja og samstarfsfólk þar sem markmiðið er að þróa og útfæra lausnir sem mæta þörfum hvers verkefnis.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sala og ráðgjöf á verslunarinnréttingum, lagerhillukerfum, vöruhúsabúnaði og tengdum lausnum.
  • Þarfagreining og útfærsla lausna í samstarfi við viðskiptavini.
  • Gerð tilboða, kostnaðaráætlana og eftirfylgni með söluverkefnum.
  • Uppbygging og viðhald langtímaviðskiptasambanda.
  • Öflun nýrra viðskiptatækifæra og þróun núverandi viðskiptasambanda.
  • Samskipti við innlenda og erlenda birgja.
  • Samstarf við aðrar deildir fyrirtækisins við framkvæmd og afhendingu verkefna.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af sölu, viðskiptaráðgjöf eða sambærilegum störfum er kostur.
  • Rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
  • Frumkvæði, metnaður og lausnamiðuð hugsun.
  • Góð tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér ný kerfi.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.
  • Tæknilegur skilningur og hæfni til að lesa teikningar er kostur.
  • Þekking á verslunarrekstri, vöruhúsum eða innréttingalausnum er kostur en ekki skilyrði.
Fríðindi í starfi
  • Fjölbreytt og krefjandi starf hjá öflugu fyrirtæki.
  • Tækifæri til að vinna að spennandi verkefnum með mörgum af stærstu fyrirtækjum landsins.
  • Sjálfstæði í starfi og möguleika á faglegum og persónulegum vexti.
  • Gott starfsumhverfi og öflugan hóp samstarfsfólks.
  • Aðgang að fjölbreyttu vöruúrvali og samstarfi við leiðandi erlenda framleiðendur.
  • Mötuneyti á staðnum 
  • Virkt starfsmannafélag
Auglýsing birt19. október 2026
Umsóknarfrestur2. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Dragháls 22
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AfgreiðslaPathCreated with Sketch.ÁkveðniPathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.AðlögunarhæfniPathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.NákvæmniPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.Samskipti í símaPathCreated with Sketch.Samskipti með tölvupóstiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SnyrtimennskaPathCreated with Sketch.SölumennskaPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.VandvirkniPathCreated with Sketch.Vinna undir álagiPathCreated with Sketch.ViðskiptasamböndPathCreated with Sketch.VöruframsetningPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar