

Hjúkrunarfræðingar á bráðalyflækningadeild A2 Fossvogi
Langar þig að vinna á fjölbreyttum og skemmtilegum vinnustað, með frábæru fagfólki?
Við óskum eftir öflugum og áhugasömum hjúkrunarfræðingum til starfa á bráðalyflækningadeild A2 í Fossvogi og bjóðum jafnt velkomna reynslumikla sem og nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga því við teljum gott að hafa breidd í þekkingu og reynslu.
Deildin er 19 rúma lyflækningadeild ætluð sjúklingum með bráð og langvinn lyflæknisfræðileg vandamál sem þarfnast innlagnar á sjúkrahús og falla undir almennar lyflækningar. Hjúkrunarviðfangsefnin á deildinni eru mjög fjölbreytt.
Á deildinni starfar öflugur hópur í þverfaglegum teymum og mikil tækifæri eru til að þróast í starfi. Hópurinn á deildinni er samhentur og ríkir góður starfsandi sem einkennist af vinnugleði og metnaði. Á deildinni er líka öflug skemmtinefnd.
Við tökum vel á móti nýju samstarfsfólki og veitum góða einstaklingshæfða aðlögun undir leiðsögn reyndra hjúkrunarfræðinga. Vinnufyrirkomulag og starfshlutfall er samkvæmt samkomulagi. Ráðið er í starfið sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.
Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Landspítali styður nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga í starfi með markvissri handleiðslu og fræðslu, samhliða starfi í í formi starfsþróunarárs Landspítala
- Virkur þátttakandi í þróun og uppbyggingu deildarinnar
- Ákveða, skipuleggja og veita hjúkrunarmeðferð
- Skrá hjúkrun í samræmi við reglur Landspítala
- Fylgjast með nýjungum í hjúkrun
- Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Jákvætt viðhorf, frumkvæði og samskiptahæfileikar
- Faglegur metnaður
- Íslenskukunnátta áskilin
Íslenska













































