Sjúkraliði á meðferðareiningu geð- og fíknisjúkdóma
Leitað er að sjúkraliða til starfa á meðferðareiningu geð- og fíknisjúkdóma Landspítala við Hringbraut. Undir meðferðareininguna heyra legudeild, göngudeild, dagdeild og afeitrunardeild ólögráða ungmenna. Um er að ræða fjölbreytt og gefandi starf þar sem unnið er í þverfaglegum teymum og náið samstarf er á milli deilda meðferðareiningarinnar.
Meðferðareiningin þjónustar fólk með tvíþættan vanda, geðrænan vanda annars vegar og vímuefnavanda hins vegar, á mismunandi þjónustustigum. Meðferðarnálgunin er fjölþætt og heildræn og tekur mið af þörfum og getu hvers skjólstæðings og aðstandenda hans.
Á meðferðareiningunni eru góð tækifæri til starfsþróunar og rík áhersla lögð á samvinnu milli deilda einingarinnar.
Ráðið er í starfið frá 1. desember 2026 eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Menntunar- og hæfniskröfur
Íslenskt sjúkraliðaleyfi
Reynsla af stuðningi við fólk með geð- og fíknisjúkdóma er kostur
Reynsla af starfi í geðþjónustu er kostur
Þekking á hugmyndafræði skaðaminnkunar
Jákvætt viðhorf, frumkvæði og mjög góð samskiptafærnia
Hæfni og vilji til að vinna í þverfaglegu teymi
Stundvísi og áreiðanleiki
Hreint sakarvottorð
Góð almenn tölvukunnátta
Góð íslenskukunnátta, bæði í mæltu og rituðu máli, viðbótartungumálakunnátta er kostur
Helstu verkefni og ábyrgð
Samskipti, hvatning, leiðbeiningar og víðtækur stuðningur
Virk þátttaka í þverfaglegu teymi
Hjúkrun, umönnun og stuðningur við sjúklinga í samvinnu við aðra fagaðila
Fylgir einstaklingum eftir í daglegri virkni, framfylgir meðferðarsamningum og meðferðaráætlunum og ber ábyrgð á ákveðnum skráningum
Tekur þátt í meðferðarvinnu í samráði við teymi sjúklings
Tekur þátt í og sér um að fyrirliggjandi dagskrá deildar hverju sinni sé framfylgt
Umsjón með fjölbreyttum og sérhæfðum verkefnum í samráði við deildastjóra
Stuðlar að góðum samstarfsanda