Landspítali
Landspítali
Landspítali

Ráðgjafar/ stuðningsfulltrúar á nýja réttar- og öryggisgeðdeild á Kleppi

Viltu taka þátt í að byggja upp nýja geðdeild og móta framtíð réttar- og öryggisgeðþjónustu?

Við leitum að áhugasömum og metnaðarfullum ráðgjöfum/stuðningsfulltrúum sem vilja taka virkan þátt í uppbyggingu nýrrar réttar- og öryggisgeðdeildar á Kleppi. Hér er spennandi tækifæri til að koma að mótun nýrrar deildar frá grunni, hafa áhrif á starfshætti og taka þátt í þróun sérhæfðrar geðheilbrigðisþjónustu.

Um deildina

Um er að ræða nýja 8 rúma legudeild sem mun sinna sérhæfðri meðferð og endurhæfingu einstaklinga með alvarlegan og flókinn geðrænan vanda. Á deildinni verður lögð áhersla á einstaklingsmiðaða og batamiðaða nálgun þar sem meðferð og endurhæfing taka mið af þörfum, styrkleikum og getu hvers og eins. Meginmarkmið þjónustunnar er að styðja einstaklinga til aukins sjálfstæðis, bættra lífsgæða og farsællar endurkomu út í samfélagið.

Starfsemin mun byggja á öflugri þverfaglegri teymisvinnu þar sem ráðgjafar/stuðningsfulltrúar gegna lykilhlutverki í daglegu lífi deildarinnar. Þeir eru í nánum og daglegum samskiptum við sjúklinga, styðja þá í athöfnum daglegs lífs, virkni, félagsfærni og endurhæfingu og taka þátt í að skapa öruggt, uppbyggilegt og styðjandi meðferðarumhverfi. Sérstök áhersla verður lögð á virka þátttöku sjúklinga í eigin meðferð, góð samskipti og markvisst samstarf við aðstandendur.

Miklar og heildrænar umbætur standa nú yfir í réttar- og öryggisgeðþjónustu Landspítala, bæði hvað varðar húsnæði, skipulag og þróun þjónustunnar. Opnun nýrrar deildar er mikilvægur liður í þeirri uppbyggingu. Starfsfólk sem ræðst til starfa fær tækifæri til að taka virkan þátt í að móta faglega sýn, þróa meðferðarumhverfi, innleiða nýja verkferla og byggja upp sterka liðsheild. Áhersla verður lögð á faglega þróun, þekkingarmiðlun og starfsumhverfi sem einkennist af samvinnu, öryggi og metnaði fyrir góðri þjónustu.

Gert er ráð fyrir að nýja deildin hefji starfsemi um miðjan mars 2027. Ráðningar munu hefjast fyrr til að tryggja starfsfólki markvissan undirbúning, fræðslu og þjálfun áður en starfsemin fer af stað.

Við bjóðum upp á fræðslu, stuðning og tækifæri til faglegrar sérhæfingar:

  • Sérhæfð fræðsla og þjálfun í réttar- og öryggisgeðþjónustu

  • Skipulögð aðlögun fyrir nýtt starfsfólk - með stuðningi í starfi, fræðslu og öruggri innkomu inn í krefjandi en gefandi starf

  • Þjálfun fyrir opnun deildar, þar sem allt starfsfólk fær tíma og stuðning til að undirbúa sig vel áður en starfsemi hefst

  • Raunveruleg tækifæri til að byggja upp sérþekkingu og þróast í starfi innan geðþjónustu Landspítala

Hvort sem þú ert að stíga þín fyrstu skref á þessu sviði eða hefur mikla reynslu - hjá okkur færðu umgjörð til að vaxa.

Betra jafnvægi vinnu og einkalífs

Vinnuvika í fullu starfi er 36 stundir, og getur orðið styttri eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta vinnu og einkalíf.

Starfskjör og upplýsingar

  • Starfshlutfall: 70-100%

  • Vinnufyrirkomulag: Vaktavinna

  • Störfin eru laus frá: 2. janúar 2027 eða eftir samkomulagi

  • Gert er ráð fyrir að deildin hefji formlega starfsemi í mars 2027

Langar þig að taka þátt í að skapa eitthvað nýtt, þróast í starfi og hafa raunveruleg áhrif á líf fólks?

Sæktu um og vertu með frá fyrsta degi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Virk þátttaka í hjúkrun og meðferð inniliggjandi sjúklinga
  • Daglegur stuðningur við sjúklinga í athöfnum daglegs lífs, virkni og endurhæfingu
  • Þátttaka í einstaklingsmiðaðri og batamiðaðri meðferð í samvinnu við þverfaglegt teymi
  • Uppbyggileg samskipti, hvatning og stuðningur við félagsfærni og sjálfstæði
  • Stuðlar að öryggi sjúklinga og starfsfólks með því að framfylgja verklagi og vera virkur þátttakandi í varnarteymi geðþjónustu
  • Tekur þátt í þróun þjónustu og umbótastarfi á nýrri deild.
  • Hefur umsjón með ýmsum störfum sem snúa að daglegum rekstri deildar
  • Stuðlar að góðum starfsanda
  • Skráning og upplýsingagjöf í samræmi við verklag deildarinnar
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi, að lágmarki stúdentspróf
  • Viðbótarmenntun sem nýtist í starfi er kostur
  • Reynsla af starfi í geðþjónustu er kostur
  • Áhugi á starfi með fólki með alvarleg geðræn einkenni
  • Geta til að vinna undir álagi í krefjandi aðstæðum
  • Góð samstarfshæfni og mjög góð færni í samskiptum
  • Jákvætt hugarfar, metnaður og áhugi á að starfa í þverfaglegu teymi
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Íslenskukunnátta, bæði í mæltu og rituðu máli
Auglýsing birt21. október 2026
Umsóknarfrestur10. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hringbraut Landspítali , 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (33)
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur í meltingarteymi
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur í ígræðsluteymi
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliðar á nýja réttar- og öryggisgeðdeild á Kleppi
Landspítali
Landspítali
Læknir - Tímabundið starf
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur í kviðarholsteymi
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliði á hjarta-, lungna-, augnskurðdeild og nýrnalækningadeild 12G
Landspítali
Landspítali
Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á nýrri réttar- og öryggisgeðdeild
Landspítali
Landspítali
Ljósmóðir á meðgönguvernd og bráðaþjónusta kvennadeilda
Landspítali
Landspítali
Heilbrigðisritari/ skrifstofustarf - Hera sérhæfð líknarþjónusta
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliði á bráðaöldrunarlækningadeild Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á bráðaöldrunarlækningadeild Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Deildarstjóri gæðadeildar
Landspítali
Landspítali
Teymisstjóri í aðfangaþjónustu
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingar á nýja réttar- og öryggisgeðdeild
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknar í geðlækningum
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur - Heimaspítali barna
Landspítali
Landspítali
Heilbrigðisgagnafræðingur - Barnaspítali Hringsins
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á vöknun í Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á göngudeild innkirtla og efnaskipta
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á innrennsliseiningu dagdeildar gigtarsjúkdóma
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á brotaendurhæfingardeild Landakoti
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunardeildarstjóri á geðgjörgæslu
Landspítali
Landspítali
Íþróttafræðingur í Batasetri geðþjónustu
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í myndgreiningu
Landspítali
Landspítali
Ljósmóðir á meðgöngu- og sængurlegudeild
Landspítali
Landspítali
Vöru- og verkefnastjóri heilbrigðistækni hjá stafrænni framþróun
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir á Sýkla- og veirufræðideild
Landspítali
Landspítali
Sérfræðingur á sviði storkurannsókna á rannsóknarkjarna
Landspítali
Landspítali
Iðjuþjálfi - Vertu hluti af öflugu teymi iðjuþjálfa á Landakoti
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í lungnalækningum
Landspítali
Landspítali
Iðjuþjálfi - Komdu að vinna með okkur í geðþjónustu
Landspítali
Landspítali
Interested in Nursing Opportunities in Iceland? Register on our portal!
Landspítali
Landspítali
Interested in Medical Opportunities in Iceland? Register on our portal!
Landspítali