Heilsuvernd Vífilsstaðir
Heilsuvernd Vífilsstaðir
Heilsuvernd Vífilsstaðir

Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa

Heilsuvernd Vífilsstöðum óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðinga til starfa. Starfshlutfall er á bilinu 60% - 100% og um vaktavinnu er að ræða. Við leitum eftir einstaklingum sem hafa jákvæðni og góð samskipti að leiðarljósi og eru tilbúnir til að starfa í fjölmenningarstarfshóp okkar á góðum vinnustað.

Á Heilsuvernd Vífilsstöðum eru rekin biðrými fyrir þá einstaklinga sem lokið hafa meðferð á Landspítalanum og hafa ekki heilsu til að búa í sjálfstæðri búsetu. Þjónustan felur í sér að veita þeim skjólstæðingum sem dvelja hjá okkur þá umönnun, þjálfun og eftirlit sem þeir þurfa, á meðan þeir bíða eftir varanlegu búsetuúrræði.

Heilsuvernd er ört stækkandi fyrirtæki í heilbrigðisþjónustu sem hefur sérhæft sig í heilsu- og vinnuverndarstörfum, heilsugæsluþjónustu og heilbrigðisþjónustu fyrir aldraða.

Hjá Heilsuvernd leggjum við okkur fram um að skapa glaðlegt og gott vinnuumhverfi, auk þess sem við leggjum mikinn metnað í að veita framúrskarandi þjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Almenn hjúkrunarstörf
  • Skipulag og ábyrgð á að hjúkrun sé veitt í samræmi við sett markmið og gæðastefnu Heilsuverndar
  • Þátttaka í þróunarverkefnum
  • Eftirlit og mat á gæðum hjúkrunar
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Próf og starfsréttindi sem hjúkrunarfræðingur
  • Áhugi á öldrunarþjónustu og vinnu með öldruðum
  • Starfsreynsla í öldrunarþjónustu er æskileg
  • Frumkvæði, jákvæðni og samstarfsvilji
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Góð samskiptahæfni
  • Þolinmæði og sveigjanleiki
  • Góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði
Auglýsing birt26. október 2026
Umsóknarfrestur15. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Vífilsstaðavegur 123, 210 Garðabær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar