
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Velferðasvið ber ábyrgð á áætlanagerð, samhæfingu og samþættingu verkefna á sviði velferðarþjónustu, eftirliti í samræmi við lög, reglur, samþykktir og pólitíska stefnu í velferðarmálum, mat á árangri og þróun velferðarþjónustu og nýrra úrræða og gerð þjónustusamninga um framkvæmd þjónustunnar. Velferðarsvið býr Reykjavíkurborg ennfremur undir að taka við nýjum velferðarverkefnum frá ríki svo sem í málefnum fatlaðra, öldrunarþjónustu og heilsugæslu.
Velferðarsvið ber ábyrgð á framkvæmd þjónustu á sviði velferðarmála, þar með talinni félagsþjónustu fyrir alla aldurshópa og barnavernd. Velferðarsvið ber ábyrgð á rekstri þjónustumiðstöðva Reykjavíkurborgar og starfseininga sem undir þær heyra. Velferðarsvið vinnur með velferðarráði og barnaverndarnefnd og sinnir málefnum þeirra. Þjónustumiðstöðvar vinna með hverfaráðum í hverfum borgarinnar.
Velferðarsvið sér einnig um rekstur miðlægrar velferðarþjónustu þvert á borgina, átaksverkefna vegna endurhæfingar fólks, heildstæðu forvarnastarfi í Reykjavík, inntöku í húsnæðis- og búsetuúrræði, rekstur hjúkrunarheimila, rekstur framleiðslueldhúss og rekstur heimahjúkrunar í Reykjavík samkvæmt samningi við ríkið þar um.

Teymisstjóri hjúkrunar Droplaugarstöðum
Dropaugarstaðir hjúkrunarheimili óska eftir öflugum hjúkrunarfræðing í stöðu teymisstjóra hjúkrunar.
Droplaugarstaðir er Eden vottað hjúkrunarheimili með áherslu á heimilislegt umhverfi og sjálfsákvörðunarrétt íbúa.
Droplaugarstaðir eru með virkt gæðakerfi og fengu ISO vottun árið 2020 fyrst hjúkrunarheimila á Íslandi. Í stefnu heimilisins eru öryggi, virkni og vellíðan íbúa, starfsfólks og fjölskyldna í öndvegi.
Við leggjum áherslu á metnað í starfi, fagleg vinnubrögð og samvinnu íbúa og starfsfólks.
Íbúar eru 87 á fjórum deildum. Við erum staðsett í hjarta Reykjavíkur og stutt í almenningssamgöngur.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með og fagleg ábyrgð á hjúkrunarþjónustu á sinni hæð
- Skipuleggur daglegt starf á sinni hæð
- Vinnur samkvæmt markmiðum, hugmyndafræði og gæðastefnu heimilisins
- Ber ábyrgð á og skipuleggur störf annarra starfsmanna. Útdeilir verkefnum í samræmi við hjúkrunarþarfir íbúa og ber ábyrgð á að þeim störfum sé framfylgt
- Ber ábyrgð á og leysir úr þeim starfsmannamálum sem upp koma hverju sinni. Greinir þörf á þeim starfsmannamálum sem þurfa frekari úrvinnslu og beinir þeim til hjúkrunarstjóra og upplýsir
- Ber ábyrgð á og metur þörf á stuðningi, fræðslu og upplýsingastreymi til aðstandenda. Sinnir fjölskylduviðtölum og stuðningsviðtölum til aðstandenda eftir þörfum
- Er til aðstoðar hjúkrunarstjóra í umsjón þeirra mála sem hjúkrunarstjóri felur starfsmanni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Hjúkrunarfræðingur með íslenskt hjúkrunarleyfi
- Íslenskukunnátta á stig C2 í samræmi við samevrópskan tungumálaramma
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði í starfi, þolinmæði og jákvætt viðhorf
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Fríðindi í starfi
- Sundkort Reykjavíkurborgar
- Menningarkort Reykjavíkurborgar
- Bókasafnskort Reykjavíkurborgar
- Íþróttastyrkur
- Samgöngusamningur
Auglýsing birt26. október 2026
Umsóknarfrestur8. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Snorrabraut 58, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FagmennskaFrumkvæðiHjúkrunarfræðingurMannleg samskiptiSjálfstæð vinnubrögðTeymisvinnaÞjónustulundÞolinmæði
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (6)

Hjúkrunarfræðingur Droplaugarstaðir
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Starfsmaður ræstingu
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Ráðgjafi heim
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Stuðningsfulltrúi óskast í Skammtímadvöl Árlandi 9
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Hjúkrunarfræðingur Droplaugarstaðir MND deild
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Umönnun Droplaugarstaðir
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Sambærileg störf (12)

Hjúkrunarfræðingur Droplaugarstaðir
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa
Heilsuvernd Vífilsstaðir

Viðskiptastjóri í hjúkrunarvörum og heilbrigðislausnum
STOÐ

Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Hvammi - tímabundið starf
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Hjúkrunarfræðingur í meltingarteymi
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur í ígræðsluteymi
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur í kviðarholsteymi
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Glæsibæ
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á nýrri réttar- og öryggisgeðdeild
Landspítali

Ljósmóðir á meðgönguvernd og bráðaþjónusta kvennadeilda
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á bráðaöldrunarlækningadeild Fossvogi
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur í dagþjónustu 60 - 80%
MS Setrið