Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Ráðgjafi heim

Foreldrafræðsla og uppeldisráðgjöf inni á heimilum.

Vilt þú styðja foreldra og fjölskyldur við að efla samskipti, styrkja uppeldisfærni og auka velferð barna?

Stuðnings- og stoðþjónusta velferðarsviðs Reykjavíkurborgar leitar að metnaðarfullum og lausnamiðuðum ráðgjafa til að styðja við uppeldisfærni foreldra.

Ráðgjafi veitir stuðning og leiðbeiningar inni á heimili fjölskyldna, þar sem sett eru markmið með uppeldisráðgjöf í samráði við notendur og félagsráðgjafa. Ráðgjafi tekur virkan þátt í samstarfsteymi innan stuðnings og stoðþjónustu sem hittist reglulega til að deila þekkingu og reynslu.

Um er að ræða fjölbreytt og gefandi starf þar sem áhersla er lögð á að styðja foreldra í foreldrahlutverkinu inn á heimilum og stuðla að jákvæðum uppeldisaðferðum og farsæld barna.

Starfið krefst ákveðins sveigjanleika þar sem unnið er seinnipart dags og stundum fram á kvöld á virkum dögum. Mikilvægt er að starfsmaður geti unnið a.m.k 2-3 daga í viku til kl. 19/20 á kvöldin. Starfshlutfall er 50-100% eftir samkomulagi. Um tímabundið starf til eins árs er að ræða, með möguleika á áframhaldandi ráðningu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Uppeldisfræðsla og ráðgjöf til foreldra í samræmi við gagnreyndar uppeldisaðferðir inni á heimilum fjölskyldna.
  • Utanumhald um skráningu, dagálagerð og stöðuskýrslur til að meta árangur ráðgjafarinnar.
  • Þátttaka í þverfaglegu stuðningsteymi.
  • Virkt notendasamráð og samvinna við aðstandendur og aðra hagsmunaaðila, eins og leikskóla og grunnskóla.
  • Útbúa fræðsluefni og aðlaga fræðslu, þegar við á, vegna margbreytilegra þarfa notenda.
  • Eftirfylgd einstaklings- og þjónustuáætlana.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, s.s. þroskaþjálfi eða á sviði félags- og menntavísinda.
  • Reynsla af starfi með fjölskyldum og börnum.
  • Geta til að tileinka sér og vinna eftir hugmyndafræði og aðferðum teymisins.
  • Framúrskarandi hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Íslenskukunnátta B2 samkvæmt samevrópskum matsramma.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
  • Bílpróf og bíll til umráða.
Auglýsing birt19. október 2026
Umsóknarfrestur2. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Skipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar