Suðurhlíð
Suðurhlíð
Suðurhlíð

Ráðgjafi hjá Suðurhlíð - 50% starf

Vilt þú leggja þitt af mörkum til að styðja þolendur ofbeldis?

Suðurhlíð, miðstöð fyrir þolendur ofbeldis, leitar að ráðgjafa í 50% starf til eins árs með möguleika á framlengingu. Við leitum að einstaklingi sem býr yfir fagmennsku, hlýju og góðri samskiptahæfni og hefur áhuga á að taka þátt í að efla þjónustu við þolendur ofbeldis. Í starfinu felst að veita ráðgjöf, stuðning og fræðslu með virðingu fyrir aðstæðum, þörfum og ákvörðunum hvers einstaklings. Lögð er áhersla á áfallamiðaða nálgun, öryggi og valdeflingu, þar sem unnið er á forsendum þolenda.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Móttaka og einstaklingsviðtöl við þolendur ofbeldis.
  • Ráðgjöf, stuðningur og fræðsla um eðli og afleiðingar ofbeldis.
  • Mat á þörfum í samráði við þjónustuþega og leiðsögn um viðeigandi úrræði.
  • Samstarf við stofnanir, fagfólk og félagasamtök í þágu þjónustuþega.
  • Skráning og eftirfylgni mála í samræmi við verklag og trúnað.
  • Þátttaka í þróun þjónustu, fræðslu og kynningu á starfsemi Suðurhlíðar.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, svo sem félagsráðgjöf, sálfræði, hjúkrunarfræði eða sambærileg menntun.
  • Reynsla af ráðgjöf eða stuðningi við fólk í viðkvæmri stöðu.
  • Þekking á ofbeldi, afleiðingum áfalla og áfallamiðaðri nálgun er æskileg.
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og geta til að mæta fólki af nærgætni og virðingu.
  • Sjálfstæði, frumkvæði og skipulögð vinnubrögð.
  • Hæfni til samstarfs við ólíka fagaðila.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta. Önnur tungumálakunnátta er kostur.
  • Rík ábyrgðarkennd, fagleg dómgreind og virðing fyrir trúnaði.
  • Hreint sakavottorð.
Auglýsing birt12. október 2026
Umsóknarfrestur26. október 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Aðalgata 60, 230 Reykjanesbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar