
Barna- og fjölskyldustofa
Barna- og fjölskyldustofa er leiðandi í þjónustu í þágu farsældar barna. Hjá stofnuninni starfa um 150 manns í fjölbreyttum störfum á starfsstöðvum á höfuðborgarsvæðinu, á Hellu og í Eyjafjarðarsveit. Stofnunin heyrir undir Barna- og menntamálaráðuneytið.
Meginverkefni Barna- og fjölskyldustofu er að veita fræðslu, ráðgjöf og handleiðslu á sviði barnaverndar og samþættingar þjónustu í þágu farsældar barna.
Stofnunin leggur mat á væntanlega fósturforeldra, heldur fósturforeldranámskeið ásamt því að veita fósturforeldrum ráðgjöf og stuðning.
Veitir börnum, innan barnaverndar, þjónustu sem lýtur að sérhæfðum meðferðarúrræðum (Stuðlar, Lækjarbakki og Bjargey), fjölkerfameðferð MST og starfsemi Barnahúss.
Auk þess leggur stofan áherslu á fræðilegar rannsóknir og stuðning við þróunar- og rannsóknarstarf ásamt uppsetningu og innleiðingu á samræmdum gagnagrunni í barnavernd á landsvísu.
Meginmarkmið Barna- og fjölskyldustofu:
• Veita framúrskarandi þjónustu í þágu farsældar barna með áherslu á gæðaþróun og stafrænar lausnir.
• Vera í fararbroddi í fræðslu og leiðsögn við þá sem veita börnum og fjölskyldum þjónustu.
• Veita fjölbreytt og sérhæfð úrræði fyrir börn byggð á gagnreyndum aðferðum.
• Stofnunin búi yfir fjölbreyttum starfshóp sem er faglegur og kraftmikill.

Tímabundið starf ráðgjafa á meðferðarheimilinu Esju
Vilt þú taka þátt í krefjandi og gefandi starfi með unglingum?
Barna- og fjölskyldustofa auglýsir lausar stöðu ráðgjafa á Esju, meðferðarheimili fyrir unglinga. Starfsstöð Esju er tímabundið staðsett á Vogi.
Starfið felur í sér einstaklingsmiðaðan stuðning við unglinga og þátttöku í meðferðarstarfi sem miðar að því að stuðla að velferð, þroska og farsæld þeirra.
Um er að ræða tímabundnar stöður í 50% og 100% starfshlutfalli til 31.8.2027 í vaktavinnu. Starfið heyrir undir forstöðumann og deildarstjóra heimilisins.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Einstaklingsmiðaður stuðningur og umönnun unglinga í daglegu lífi.
- Þátttaka í meðferðarstarfi og framkvæmd einstaklingsbundinna meðferðaráætlana í samstarfi við stjórnendur og fagaðila.
- Þátttaka í skipulagningu og framkvæmd tómstundastarfs með unglingum.
- Samskipti og samstarf við foreldra, forsjáraðila og aðra samstarfsaðila.
- Að stuðla að öruggu og styðjandi umhverfi fyrir unglinga.
- Vinna samkvæmt verklagsreglum heimilisins og stefnu stofnunarinnar.
- Önnur tilfallandi verkefni í samráði við yfirmann.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun og/eða reynsla sem að nýtist í starfi.
- Hæfni til að takast á við krefjandi aðstæður.
- Þekking og/eða reynsla af meðferðarstarfi með unglingum er kostur.
- Góð samskipta- og samstarfshæfni.
- Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Sveigjanleiki og lausnamiðuð vinnubrögð.
- Góð íslenskukunnátta í mæltu og rituðu máli.
- Gild ökuréttindi.
Auglýsing birt27. nóvember 2026
Umsóknarfrestur7. desember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Stórhöfði 45, 110 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (7)

Ráðgjafar á Stuðlum
Barna- og fjölskyldustofa

Hópstjórar á Stuðlum
Barna- og fjölskyldustofa

Sálfræðingur í fagteymi meðferðar
Barna- og fjölskyldustofa

Tímabundið hlutastarf í stöðu ráðgjafa á búsetukjörnum á höfuðborgarsvæðinu
Barna- og fjölskyldustofa

Ráðgjafar á búsetukjörnum á höfuðborgarsvæðinu
Barna- og fjölskyldustofa

Hópstjóri á meðferðarheimilið Esju
Barna- og fjölskyldustofa

Störf á meðferðarheimilinu Lækjarbakka
Barna- og fjölskyldustofa
Sambærileg störf (9)

Ráðgjafar á Stuðlum
Barna- og fjölskyldustofa

Hópstjórar á Stuðlum
Barna- og fjölskyldustofa

Þjónusturáðgjafi
Skóla- og velferðarþjónusta Árnesþings bs.

Viltu vinna að því að fólk stjórni eigin lífi? - Ráðgjafi óskast
NPA miðstöðin

Tímabundið hlutastarf í stöðu ráðgjafa á búsetukjörnum á höfuðborgarsvæðinu
Barna- og fjölskyldustofa

Ráðgjafar á búsetukjörnum á höfuðborgarsvæðinu
Barna- og fjölskyldustofa

Hópstjóri á meðferðarheimilið Esju
Barna- og fjölskyldustofa

Störf á meðferðarheimilinu Lækjarbakka
Barna- og fjölskyldustofa

Stuðningsaðili á Velferðarsviði
Velferðarsvið Kópavogsbæjar