Barna- og fjölskyldustofa
Barna- og fjölskyldustofa
Barna- og fjölskyldustofa

Ráðgjafar á Stuðlum

Vilt þú taka þátt í krefjandi og gefandi starfi með ungmennum?

Barna- og fjölskyldustofa auglýsir lausar til umsóknar tvær stöður ráðgjafa á Stuðlum. Starfið heyrir undir forstöðumann og deildarstjóra Stuðla. Um er að ræða tvær fastráðningar í 100% stöður í vaktavinnu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Veita skjólstæðingum einstaklingsbundinn stuðning í samvinnu við stjórnendur og fagaðila með áherslu á uppbyggilega virkni og vellíðan.
  • Samskipti við foreldra og samstarfsaðila.
  • Dagnótaskráning um framgang vistunar, stöðu og líðan skjólstæðinga.
  • Vinna eftir verklagsreglum Stuðla og stefnu stofnunarinnar.
  • Önnur verkefni í samráði við yfirmenn.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla og/eða menntun sem að mati forstöðumanns nýtist í starfi, t.d. við öryggisgæslu, meðferðar-, tómstunda- eða íþróttastarf.
  • Mjög gott líkamlegt atgervi og andlegt heilbrigði.
  • Mikil færni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði, sjálfstæði og skipulag í vinnubrögðum.
  • Sveigjanleiki og þjónustulund.
  • Jákvætt viðhorf til skjólstæðinga og áhuga á að starfa með ungmennum.
  • Hæfni til að takast á við krefjandi aðstæður.
  • Góð íslenskukunnátta í mæltu og rituðu máli, enskukunnátta æskileg.
  • Gild ökuréttindi.
  • Hreint sakavottorð.
Auglýsing birt26. nóvember 2026
Umsóknarfrestur11. desember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Valkvætt
Meðalhæfni
Staðsetning
Fossaleynir 17, 112 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar