
Barna- og fjölskyldustofa
Barna- og fjölskyldustofa er leiðandi í þjónustu í þágu farsældar barna. Hjá stofnuninni starfa um 150 manns í fjölbreyttum störfum á starfsstöðvum á höfuðborgarsvæðinu, á Hellu og í Eyjafjarðarsveit. Stofnunin heyrir undir Barna- og menntamálaráðuneytið.
Meginverkefni Barna- og fjölskyldustofu er að veita fræðslu, ráðgjöf og handleiðslu á sviði barnaverndar og samþættingar þjónustu í þágu farsældar barna.
Stofnunin leggur mat á væntanlega fósturforeldra, heldur fósturforeldranámskeið ásamt því að veita fósturforeldrum ráðgjöf og stuðning.
Veitir börnum, innan barnaverndar, þjónustu sem lýtur að sérhæfðum meðferðarúrræðum (Stuðlar, Lækjarbakki og Bjargey), fjölkerfameðferð MST og starfsemi Barnahúss.
Auk þess leggur stofan áherslu á fræðilegar rannsóknir og stuðning við þróunar- og rannsóknarstarf ásamt uppsetningu og innleiðingu á samræmdum gagnagrunni í barnavernd á landsvísu.
Meginmarkmið Barna- og fjölskyldustofu:
• Veita framúrskarandi þjónustu í þágu farsældar barna með áherslu á gæðaþróun og stafrænar lausnir.
• Vera í fararbroddi í fræðslu og leiðsögn við þá sem veita börnum og fjölskyldum þjónustu.
• Veita fjölbreytt og sérhæfð úrræði fyrir börn byggð á gagnreyndum aðferðum.
• Stofnunin búi yfir fjölbreyttum starfshóp sem er faglegur og kraftmikill.

Sálfræðingur í fagteymi meðferðar
Barna- og fjölskyldustofa leitar að öflugum sálfræðingi í fagteymi meðferðar. Starfsstöð er Borgartún 33, með viðveru á meðferðarheimilum BOFS sem eru staðsett á Akureyri, Rangárvöllum og Reykjavík.
Í fagteymi meðferðar starfa sálfræðingar og aðrir sérfræðingar. Hlutverk teymisins er að hafa faglega umsjón með greiningu og meðferð skjólstæðinga á meðferðarheimilum stofunnar. Teymið veitir einnig starfsfólki meðferðarheimilanna stuðning og fræðslu, auk þess að sinna ráðgjöf og móttöku umsókna frá barnaverndarþjónustum um vistun á meðferðarheimilum. Jafnframt tekur teymið þátt í faglegri þróun innan málaflokksins og veitir stuðning og handleiðslu þvert á svið BOFS.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð á sálfræðiþjónustu á meðferðarheimilum BOFS, sem eru Esja, Bjargey, Lækjarbakki og Stuðlar. Meðferðarheimilin eru að hluta staðsett utan höfuðborgarsvæðisins og eru ferðalög því hluti af starfinu.
- Umsjón með greiningu og meðferð, þar með talið stuðningur við fjölskyldur og eftirfylgd.
- Gerð og framkvæmd einstaklingsbundinna meðferðaráætlana fyrir skjólstæðinga.
- Halda utan um teymi skjólstæðinga.
- Umsjón með innskrift, stöðufundum og útskrift skjólstæðinga í samráði við forstöðumann meðferðarheimilis.
- Skrifa greiningar- og meðferðarskýrslur.
- Ábyrgð á innleiðingu og/eða viðhaldi tiltekinna gagnreyndra aðferða í meðferðarstarfi, m.a. áfallamiðaðrar nálgunar (Three Pillars), áhugahvetjandi samtals (Motivational Interviewing, MI) og atferlismeðferðar.
- Þátttaka í almennri stefnumótun og þróun á sviði sálfræðiþjónustu og meðferðar BOFS.
- Fræðsla, ráðgjöf, handleiðsla og samstarf við starfsfólk meðferðarheimila BOFS, barnaverndarþjónusta, skóla, heilbrigðisstofnana og annarra stofnana.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Starfsleyfi sem sálfræðingur á Íslandi.
- Reynsla af greiningu og mati á frávikum í hegðun og þroska barna og unglinga, þ.m.t. notkun viðeigandi matstækja.
- Reynsla af meðferðarstarfi með börnum og unglingum með alvarlegan hegðunar- og/eða vímuefnavanda og fjölskyldum þeirra.
- Framúrskarandi hæfni í samskiptum og færni til að handleiða og eiga samvinnu við samstarfsfólk innan stofnunar sem utan.
- Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð.
- Sveigjanleiki og jákvætt viðhorf til skjólstæðinga og samstarfsaðila.
- Góð færni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku er nauðsynleg.
Auglýsing birt25. nóvember 2026
Umsóknarfrestur7. desember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Borgartún 33, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (4)