
Barna- og fjölskyldustofa
Barna- og fjölskyldustofa er leiðandi í þjónustu í þágu farsældar barna. Hjá stofnuninni starfa um 150 manns í fjölbreyttum störfum á starfsstöðvum á höfuðborgarsvæðinu, á Hellu og í Eyjafjarðarsveit. Stofnunin heyrir undir Barna- og menntamálaráðuneytið.
Meginverkefni Barna- og fjölskyldustofu er að veita fræðslu, ráðgjöf og handleiðslu á sviði barnaverndar og samþættingar þjónustu í þágu farsældar barna.
Stofnunin leggur mat á væntanlega fósturforeldra, heldur fósturforeldranámskeið ásamt því að veita fósturforeldrum ráðgjöf og stuðning.
Veitir börnum, innan barnaverndar, þjónustu sem lýtur að sérhæfðum meðferðarúrræðum (Stuðlar, Lækjarbakki og Bjargey), fjölkerfameðferð MST og starfsemi Barnahúss.
Auk þess leggur stofan áherslu á fræðilegar rannsóknir og stuðning við þróunar- og rannsóknarstarf ásamt uppsetningu og innleiðingu á samræmdum gagnagrunni í barnavernd á landsvísu.
Meginmarkmið Barna- og fjölskyldustofu:
• Veita framúrskarandi þjónustu í þágu farsældar barna með áherslu á gæðaþróun og stafrænar lausnir.
• Vera í fararbroddi í fræðslu og leiðsögn við þá sem veita börnum og fjölskyldum þjónustu.
• Veita fjölbreytt og sérhæfð úrræði fyrir börn byggð á gagnreyndum aðferðum.
• Stofnunin búi yfir fjölbreyttum starfshóp sem er faglegur og kraftmikill.

Störf á meðferðarheimilinu Lækjarbakka
Vilt þú taka þátt í krefjandi og gefandi starfi með ungmennum?
Barna- og fjölskyldustofa auglýsir laus til umsóknar störf ráðgjafa á meðferðarheimilinu Lækjarbakka. Heimilið er starfrækt í Gunnarsholti, rétt utan við Hellu. Um er að ræða 100% störf í vaktavinnu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Einstaklingsbundinn stuðningur við skjólstæðinga og meðferðarvinna í samvinnu við stjórnendur og sálfræðinga.
- Vinna að tómstundastarfi, starfsþjálfun og stuðningi í námi.
- Umönnun og tryggja öryggi skjólstæðinga.
- Samskipti við foreldra og samstarfsaðila.
- Vinna eftir verklagsreglum og þeim gagnreyndu aðferðum sem unnið er eftir á heimilinu.
- Almenn heimilisstörf.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Mjög gott líkamlegt atgervi og andlegt heilbrigði.
- Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum.
- Reynsla og/eða menntun sem nýtist í starfi, t.d. reynsla af öryggisgæslu, meðferðar-, tómstunda- eða íþróttastarfi.
- Jákvætt viðhorf og áhugi á að starfa með ungmennum.
- Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð.
- Sveigjanleiki og þjónustulund.
- Íslensku- og enskukunnátta í mæltu og rituðu máli.
- Gild ökuréttindi.
Auglýsing birt16. nóvember 2026
Umsóknarfrestur30. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Borgartúni 33
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar



