Bjarmahlíð - miðstöð fyrir þolendur ofbeldis
Bjarmahlíð - miðstöð fyrir þolendur ofbeldis
Bjarmahlíð - miðstöð fyrir þolendur ofbeldis

Bjarmahlíð - ráðgjafi

Langar þig til að taka þátt í krefjandi og mikilvægu verkefni?

Bjarmahlíð – miðstöð fyrir þolendur ofbeldis á Norðurlandi sem starfrækt hefur verið frá árinu 2019 – leitar að ráðgjafa í 50% starf.

Bjarmahlíð er miðstöð fyrir þolendur ofbeldis og býður upp á einstaklingsviðtöl, ráðgjöf og upplýsingar fyrir þolendur ofbeldis 16 ára og eldri. Í Bjarmahlíð er brotaþolum mætt í hlýlegu og öruggu umhverfi, á þeirra forsendum og einstaklingum að kostnaðarlausu. Öll þjónusta og ráðgjöf er undir sama þaki með það að markmiði að auðvelda þolendum að leita sér aðstoðar. Bjarmahlíð leggur áherslu á þverfaglega samvinnu þeirra stofnanna og samtaka sem koma að vinnu á staðnum.

Ráðgjafastarfið býður upp á fjölbreytt verkefni sem og starfsþróun í teymisvinnu með öðrum fagaðilum.

Helstu verkefni og ábyrgð

·   

  • Mat á þörf fyrir þjónustu Bjarmahlíðar.
  • Upplýsinga- og ráðgjöf til þolenda ofbeldis.
  • Þátttaka í daglegri umsýslu miðstöðvarinnar.
  • Þátttaka í mótun þjónustu Bjarmahlíðar.
  • Námskeið fyrir smærri hópa.
  • Upplýsinga- og ráðgjöf til fagaðila.
  • Kynningar og fræðsla.
  • Umsjón heimasíðu og samfélagsmiðla
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun á sviði félags-, heilbrigðis- eða menntavísinda sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af greiningu og ráðgjöf.
  • Reynsla af þverfaglegu starfi og teymisvinnu.
  • Þekking á birtingamyndum, eðli og afleiðingum ofbeldis.
  • Þekking á áfallamiðaðri vinnu.
  • Sjálfstæði, frumkvæði og skipulögð vinnubrögð.
  • Framúrskarandi samskiptahæfni.
  • Sveigjanleiki, jákvætt og lausnamiðað viðhorf.
  • Góð tölvufærni og þekking og reynsla af notkun og umsjón samfélagsmiðla. 
  • Reynsla af miðlun upplýsinga í ræðu og riti.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta, önnur tungumálakunnátta er kostur.
Auglýsing birt12. nóvember 2026
Umsóknarfrestur23. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Aðalstræti 14, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.Ökuréttindi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar