Skóla- og velferðarþjónusta Árnesþings
Skóla- og velferðarþjónusta Árnesþings
Skóla- og velferðarþjónusta Árnesþings

Þjónusturáðgjafi

Skóla- og velferðarþjónusta Árnesþings bs. (SVÁ) leitar að þjónusturáðgjafa heimaþjónustu í 80% starf. Starfsstöð er að Launrétt 3, 806 Laugarási.

Vilt þú nýta skipulagshæfni þína og þjónustulund í fjölbreyttu starfi þar sem samskipti, samvinna og vönduð vinnubrögð eru í fyrirrúmi?

Þjónusturáðgjafi styður við daglega framkvæmd samþykktrar stuðnings- og heimaþjónustu, tekur á móti erindum og aðstoðar starfsfólk við skráningu og skjalavinnslu.

Í starfinu átt þú náið samstarf við starfsfólk SVÁ, þjónustunotendur og aðstandendur þeirra. Þú stuðlar að því að samþykkt þjónusta komist til framkvæmda með skipulegum hætti og að upplýsingar séu skráðar og miðlaðar rétt og tímanlega.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Framkvæmd samþykktrar stuðnings- og heimaþjónustu.
  • Uppfæra verk- og heimsóknaáætlanir.
  • Miðla upplýsingum til starfsfólks og þjónustunotenda.
  • Móttaka erinda.
  • Leiðbeina starfsfólki um skráningu og viðeigandi verkferla.
  • Taka þátt í gæðastarfi sem tengist starfinu.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist við þjónustu, skrifstofustörf eða skipulag velferðarþjónustu.
  • Reynsla af þjónustu, skrifstofustörfum eða verkefnaskipulagi er æskileg.
  • Reynsla af stuðnings- eða heimaþjónustu er kostur.
  • Góð skipulags-, samskipta- og samstarfshæfni.
  • Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti.
  • Góð almenn tölvufærni og nákvæmni.
Fríðindi í starfi

Við bjóðum

  • Fjölbreytt þjónustu- og skipulagsstarf í þverfaglegu starfsumhverfi.
  • Tækifæri til að taka þátt í umbótum á skráningu, upplýsingaflæði og verkferlum.
  • Starf þar sem samvinna, virðing og áreiðanleiki eru höfð að leiðarljósi.
Auglýsing birt23. nóvember 2026
Umsóknarfrestur11. desember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Launrétt 3
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn tölvukunnáttaPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Opinber stjórnsýslaPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar