

Heilbrigðisritari/ skrifstofumaður - Almenn göngudeild við Hringbraut
Heilbrigðisritari/ skrifstofumaður óskast á almenna göngudeild við Hringbraut
Leitað er eftir þjónustuliprum einstaklingi sem er fljótur að tileinka sér ný verkefni, sýnir frumkvæði í starfi og á auðvelt með að starfa í teymi. Um er að ræða fullt dagvinnustarf sem felur í sér fjölbreytt, krefjandi verkefni og krefst góðrar samskiptahæfni. Starfið er laust nú þegar eða eftir samkomulagi.
Á almennri göngudeild eru sérhæfðar teymismóttökur á sviði skurð- og lyflækninga s.s. meltingarteymi, kviðarhols- og stómateymi og einnig móttaka í sárameðferðir og innrennsli. Við tökum vel á móti nýju starfsfólki og veitum góða og einstaklingsmiðaða aðlögun að starfi.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir sem stuðlar að betra jafnvægi milli vinnu og einkalífs.
Íslenska
Enska









































