

Sjúkraliðar og sjúkraliðanemar á bráðalyflækningadeild A2 Fossvogi
Við óskum eftir öflugum og áhugasömum sjúkraliðum eða sjúkraliðanemum til starfa á bráðalyflækningadeild A2 í Fossvogi.
Deildin er 19 rúma lyflækningadeild ætluð sjúklingum með bráð og langvinn lyflæknisfræðileg vandamál sem þarfnast innlagnar á sjúkrahús og falla undir almennar lyflækningar. Hjúkrunarviðfangsefnin á deildinni eru mjög fjölbreytt.
Á deildinni starfar öflugur hópur í þverfaglegum teymum og mikil tækifæri eru til þróunar í starfi. Hópurinn er samhentur og ríkir góður starfsandi sem einkennist af vinnugleði og metnaði. Á deildinni er einnig öflug skemmtinefnd.
Við sækjumst eftir sjúkraliðum sem búa yfir þekkingu og reynslu sem og nýútskrifuðum sjúkraliðum eða sjúkraliðanemum. Við leggjum metnað í að taka vel á móti nýju samstarfsfólki og veita góða einstaklingshæfða aðlögun.
Starfið er í vaktavinnu og starfshlutfall er samkvæmt samkomulagi. Ráðið er í starfið sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.
Vinnuskylda starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir á viku og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Íslenska










































