
Barna- og fjölskyldustofa
Barna- og fjölskyldustofa er leiðandi í þjónustu í þágu farsældar barna. Hjá stofnuninni starfa um 150 manns í fjölbreyttum störfum á starfsstöðvum á höfuðborgarsvæðinu, á Hellu og í Eyjafjarðarsveit. Stofnunin heyrir undir Barna- og menntamálaráðuneytið.
Meginverkefni Barna- og fjölskyldustofu er að veita fræðslu, ráðgjöf og handleiðslu á sviði barnaverndar og samþættingar þjónustu í þágu farsældar barna.
Stofnunin leggur mat á væntanlega fósturforeldra, heldur fósturforeldranámskeið ásamt því að veita fósturforeldrum ráðgjöf og stuðning.
Veitir börnum, innan barnaverndar, þjónustu sem lýtur að sérhæfðum meðferðarúrræðum (Stuðlar, Lækjarbakki og Bjargey), fjölkerfameðferð MST og starfsemi Barnahúss.
Auk þess leggur stofan áherslu á fræðilegar rannsóknir og stuðning við þróunar- og rannsóknarstarf ásamt uppsetningu og innleiðingu á samræmdum gagnagrunni í barnavernd á landsvísu.
Meginmarkmið Barna- og fjölskyldustofu:
• Veita framúrskarandi þjónustu í þágu farsældar barna með áherslu á gæðaþróun og stafrænar lausnir.
• Vera í fararbroddi í fræðslu og leiðsögn við þá sem veita börnum og fjölskyldum þjónustu.
• Veita fjölbreytt og sérhæfð úrræði fyrir börn byggð á gagnreyndum aðferðum.
• Stofnunin búi yfir fjölbreyttum starfshóp sem er faglegur og kraftmikill.

Hópstjórar á Stuðlum
Vilt þú taka þátt í krefjandi og gefandi starfi með ungmennum?
Barna- og fjölskyldustofa auglýsir lausar til umsóknar þrjár stöður hópstjóra á Stuðlum. Starfið heyrir undir forstöðumann og deildarstjóra Stuðla. Um er að ræða þrjár fastráðningar í 100% stöður í vaktavinnu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð á vaktstjórn og verkaskiptingu meðal ráðgjafa í samvinnu við deildarstjóra.
- Samhæfing verkefna á Stuðlum í fjarveru stjórnenda.
- Veita skjólstæðingum einstaklingsbundinn stuðning í samvinnu við stjórnendur og fagaðila með áherslu á uppbyggilega virkni og vellíðan.
- Samskipti við foreldra og samstarfsaðila.
- Hafa umsjón með dagnótaskrifum um framgang vistunar, stöðu og líðan skjólstæðinga.
- Vinna eftir verklagsreglum Stuðla og stefnu stofnunarinnar.
- Önnur tilfallandi verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- BA/BS próf sem nýtist í starfi er æskilegt.
- Reynsla af störfum með ungmennum með alvarlegan hegðunar- og /eða vímuefnavanda og fjölskyldum þeirra.
- Góð þekking og/eða reynsla af notkun áhugahvetjandi samtals (Motivational Interviewing), ART (Aggression Replacement Training) og áfallamiðaðri nálgun er kostur (Three Pillars of Trauma Informed Care).
- Mjög gott líkamlegt atgervi og andlegt heilbrigði.
- Mikil færni í mannlegum samskiptum.
- Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Sveigjanleiki og þjónustulund.
- Hæfni til að takast á við krefjandi aðstæður.
- Góð íslenskukunnátta í mæltu og rituðu máli, enskukunnátta æskileg.
- Gild ökuréttindi.
Auglýsing birt26. nóvember 2026
Umsóknarfrestur11. desember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaValkvætt
Staðsetning
Fossaleynir 17, 112 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (6)

Ráðgjafar á Stuðlum
Barna- og fjölskyldustofa

Sálfræðingur í fagteymi meðferðar
Barna- og fjölskyldustofa

Tímabundið hlutastarf í stöðu ráðgjafa á búsetukjörnum á höfuðborgarsvæðinu
Barna- og fjölskyldustofa

Ráðgjafar á búsetukjörnum á höfuðborgarsvæðinu
Barna- og fjölskyldustofa

Hópstjóri á meðferðarheimilið Esju
Barna- og fjölskyldustofa

Störf á meðferðarheimilinu Lækjarbakka
Barna- og fjölskyldustofa
Sambærileg störf (8)

Ráðgjafar á Stuðlum
Barna- og fjölskyldustofa

Þjónusturáðgjafi
Skóla- og velferðarþjónusta Árnesþings bs.

Viltu vinna að því að fólk stjórni eigin lífi? - Ráðgjafi óskast
NPA miðstöðin

Tímabundið hlutastarf í stöðu ráðgjafa á búsetukjörnum á höfuðborgarsvæðinu
Barna- og fjölskyldustofa

Ráðgjafar á búsetukjörnum á höfuðborgarsvæðinu
Barna- og fjölskyldustofa

Hópstjóri á meðferðarheimilið Esju
Barna- og fjölskyldustofa

Störf á meðferðarheimilinu Lækjarbakka
Barna- og fjölskyldustofa

Stuðningsaðili á Velferðarsviði
Velferðarsvið Kópavogsbæjar