

Meðferðaraðili - Geðheilsumiðstöð barna HH
Hefur þú áhuga á geðheilbrigðisþjónustu við börn og fjölskyldur?
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar að meðferðaraðila til starfa í Ráðgjafar- og meðferðarteymi hjá Geðheilsumiðstöð barna (GMB).
Geðheilsumiðstöð barna veitir 2. stigs heilbrigðisþjónustu á landsvísu fyrir fjölskyldur með börn frá meðgöngu að 18 ára aldri. Miðstöðin sinnir greiningu, ráðgjöf og meðferð vegna geð- og taugaþroskavanda barna og unglinga ásamt því að styðja við tengslamyndun foreldra og barna frá 0-5 ára. Starfshópur GMB er þverfaglegur og vinnur eftir markvissu skipulagi með fagleg gæði að leiðarljósi. Áhersla er á gott viðmót og fjölskyldumiðaða þjónustu. GMB á reglulegt samstarf við þjónustuveitendur víðsvegar um landið og sinnir starfsþjálfun háskólanema á sviðinu.
Um er að ræða 80-100% ótímabundið starf, ráðið er í starfið frá 1. janúar nk. eða eftir nánara samkomulagi.
Ráðgjafar- og meðferðarteymi er þverfaglegt teymi innan GMB sem veitir ráðgjöf og meðferð til barna og ungmenna að 18 ára aldri vegna miðlungs til alvarlegs geðræns vanda. Í teyminu eru m.a. félagsráðgjafar, sálfræðingar, hjúkrunarfræðingar, læknar og fjölskyldufræðingar. Þjónusta teymisins telst til annarrar línu geðheilbrigðisþjónustu. Meðferðaraðili tekur virkan þátt í umbótastarfi og þróun þjónustu.
-
Starfsleyfi sem heilbrigðisstarfsmaður frá Embætti landlæknis, t.d. iðjuþjálfi, félagsráðgjafi, hjúkrunarfræðingur eða sálfræðingur.
-
Reynsla af meðferðarvinnu er skilyrði
-
Reynsla á sviði þroska-, geð- og hegðunarvanda hjá börnum er æskileg
-
Reynsla af þverfaglegri teymisvinnu er æskileg
-
Hlýlegt viðmót og góð hæfni í mannlegum samskiptum
-
Faglegur metnaður
-
Sjálfstæði, frumkvæði, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
-
Hæfni til að veita meðferð í flóknum aðstæðum og lausnamiðuð nálgun
-
Áhugi og vilji til að starfa í þverfaglegu teymi
-
Góð almenn tölvukunnátta
-
Góð íslenskukunnátta
-
Góð almenn enskukunnátta
Heilsustyrkur
Samgöngustyrkur
Íslenska



















