

Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Efstaleiti
Heilsugæslan Efstleiti auglýsir eftir hjúkrunarfræðingi í 80-100% ótímabundið starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. febrúar nk. eða eftir nánara samkomulagi.
Á Heilsugæslunni Efstaleiti starfar sérhæft og metnaðarfullt starfsfólk í hvetjandi og skemmtilegu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði fær að njóta sín. Lögð er áhersla á náið samstarf fagstétta og teymisvinnu.
Mikil þróunarvinna er í gangi á stöðinni og stöðugt er unnið að því að bæta þjónustu við skjólstæðinga. Hjúkrunarfræðingar sinna krefjandi og áhugaverðum verkefnum, margvísleg tækifæri eru til að þróa með sér góða þekkingu og hæfni í starfi.
Ný og spennandi tækifæri eru til starfsþróunar innan HH, þar sem hjúkrunarfræðingum stendur til boða að þróa sig í starfi s.s starfsþróunarár og sérnám í heilsugæsluhjúkrun. Heilsugæslan Efstaleiti leggur áherslu á einstaklingsmiðaða aðlögun og stuðning við nýja starfsmenn.
Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna inni á island.is/starfatorg
Megin starfssvið er heilsuvernd aldraða, forflokkun, opin og bókuð móttaka.
Opin og bókuð móttaka
Í móttöku sinna hjúkrunarfræðingar fólki á öllum aldri, bráðaerindum, bókuðum tímum og símaráðgjöf ásamt því að svara skilaboðum í gegnum Heilsuveru. Í bókaðri móttöku er tekið á móti erindum s.s. ferðamannaheilsuvernd, sárameðferð, lyfjagjöfum ásamt heilsueflandi móttöku.
Heilsueflandi móttaka
Hjúkrunarfræðingur metur heilsu skjólstæðinga og þörf þeirra á heilsueflingu. Lögð er áhersla á einstaklingsmiðaða nálgun, stuðning, fræðslu og eftirfylgni ásamt leiðsögn um heilbrigðikerfið og þjónustuúrræði.
-
Íslenskt hjúkrunarleyfi
-
Þekking og áhugi á forvarnar- og heilsueflingarstarfi
-
Reynsla af heilsugæsluhjúkrun kostur
-
Sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
-
Reynsla og áhugi á teymisvinnu
-
Reynsla af bráða- og slysamóttöku er kostur
-
Mikil samskiptahæfni og sveigjanleiki
-
Íslenskukunnátta og góð almenn tölvukunnátta
- Heilsustyrkur
- Samgöngustyrkur
Íslenska
Enska


















