

Sérfræðingur á Gæða- og þróunarsvið Hrafnistu
Hrafnista leitar að reynslumiklum hjúkrunarfræðingi sem hefur brennandi áhuga á faglegri þróun, gæðum og umbótum í þjónustu við íbúa hjúkrunarheimila. Sérfræðingurinn starfar á Gæða- og þróunarsviði Hrafnistu sem er stoðsvið fyrir sjö hjúkrunarheimili. Hlutverk sviðsins er að leiða faglega þróun, innleiða nýtt vinnulag og efla gæði þjónustunnar með það að markmiði að tryggja samræmd og fagleg vinnubrögð á öllum heimilum. Á sviðinu starfa 15 sérfræðingar með ólíka fagþekkingu.
Starfið felur í sér að leiða og styðja við þróunar- og umbótaverkefni, miðla fagþekkingu og vinna náið með stjórnendum og starfsfólki að innleiðingu breytinga og eflingu þjónustunnar. Við leitum að einstaklingi sem er sjálfstæður, lausnamiðaður og hefur sterka leiðtogahæfileika, góða samskiptahæfni og getu til að skapa áhuga og fá fólk með sér í breytingar.
- Aðkoma að faglegri þróun og umbótum á Hrafnistu
- Leiða og fylgja eftir innleiðingu verkefna og vinnubragða í samstarfi við hagsmunaaðila
- Efla gæði og samræmingu faglegra starfshátta í samstarfi við heimilin
- Styðja stjórnendur og starfsfólk og miðla fagþekkingu
- Vinna að gæðamálum, RAI og eftirfylgni með lögum og reglugerðum
- Samstarf við innri og ytri hagaðila
- Annað sem til getur fallið
- Hjúkrunarfræðimenntun
- Víðtæk reynsla af heilbrigðisþjónustu
- Góð þekking á gæðamálum og umbótastarfi
- Leiðtogahæfni og framúrskarandi samskiptafærni
- Frumkvæði, sjálfstæði og drifkraftur
- Reynsla af stjórnun æskileg
Íslenska










