

Sérfræðingur í hjúkrun - Dag- og göngudeild Barnaspítala Hringsins
Laust er til umsóknar starf sérfræðings í hjúkrun á dag- og göngudeild Barnaspítala Hringsins. Auglýst er eftir kraftmiklum einstaklingi til að efla öryggi, gæði og framþróun með áherslu á hjúkrun barna sem fara í skurðaðgerðir og/ eða þurfa sérhæfða sárameðferð.
Starf sérfræðings í hjúkrun nær þvert yfir Barnaspítala Hringsins og því leitum við að einstaklingi sem hefur sterka heildarsýn, býr yfir lausnamiðaðri hugsun og er tilbúinn að leggja sitt af mörkum þar sem þörf er á.
Sérfræðingur í hjúkrun er sýnilegur leiðtogi sem veitir sérhæfða hjúkrun, miðlar sérfræðiþekkingu, styður við samstarfsfólk og styrkir starfsemi Barnaspítalans í heild og hjálpar honum þannig að ná markmiðum sínum.
Þetta er einstakt tækifæri fyrir sérfræðing sem hefur brennandi áhuga á klínísku starfi, umbótum, nýsköpun og þróun barnahjúkrunar og vill hafa áhrif á þjónustu við börn sem fara í skurðaðgerðir og/eða þurfa sérhæfða sárameðferð og fjölskyldur þeirra.
Starfshlutfall, sem skiptist á milli dag- og göngudeildar, er 100% og er starfið laust frá 1. janúar 2027 eða eftir samkomulagi
Barnaspítali Hringsins hefur forystu í heilbrigðisþjónustu við börn á Íslandi og fjölskyldur þeirra. Þar er veitt fjölbreytt heilbrigðisþjónusta sem krefst mikillar sérhæfingar og náinnar samvinnu við þjónustuþega.
Íslenska













































