

Lífeindafræðingur eða náttúrufræðingur á hjartarannsóknarstofu
Laust er til umsóknar starf lífeindafræðings eða náttúrfræðings á hjartarannsóknarstofu Landspítala. Á einingunni starfar 25 manna samhentur hópur í þverfaglegulegu teymi og í nánu samstarfi við aðra faghópa.
Starfsemi hjartarannsóknastofu er fjölbreytt og enginn dagur er eins. Við þjónustum sjúklinga sem ýmist eru inniliggjandi eða koma frá göngudeildum. Vaxandi þáttur starfsemi tengist fjarþjónustu við skjólstæðinga í gangráðs- og bjargráðseftirliti.
Starfshlutfall er 80-100%, unnið er í dagvinnu. Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Ráðið er í starfið frá 1. desember 2026 eða samkvæmt nánara samkomulagi. Við tökum vel á móti nýju samstarfsfólki og veitum góða einstaklingshæfða aðlögun.
Íslenska













































