

Hjúkrunarfræðingar - komdu til liðs við okkur á Reykjalundi
Langar þig til að starfa í fjölbreyttu fagumhverfi þar sem þú færð tækifæri til að hafa áhrif á heilsu, færni og lífsgæði einstaklinga ?
Reykjalundur leitar að áhugasömum og metnaðarfullum hjúkrunarfræðingum til starfa í dag- og legudeildarþjónustu.
Á Reykjalundi starfar öflugur hópur fagfólks sem vinnur saman að því að efla heilsu, færni og sjálfstæði einstaklinga í þverfaglegri endurhæfingu. Við leggjum áherslu á einstaklingsmiðaða þjónustu, heildræna nálgun og öflugt þverfaglegt samstarf.
Fjölbreytt og gefandi starf
Hjúkrunarfræðingar á Reykjalundi gegna mikilvægu hlutverki í þverfaglegri endurhæfingu. Starfið felur meðal annars í sér að styðja sjúklinga til að taka á ýmsum þáttum sem hafa áhrif á heilbrigði þeirra. Hjúkrunarfræðingar sinna fræðslu, heilsueflingu og stuðningi við sjálfsumönnun og taka virkan þátt í skipulagningu, framkvæmd og mati á endurhæfingu.
Á Reykjalundi starfa átta sérhæfð þverfagleg meðferðarteymi á tveimur meðferðarsviðum. Þau sinna meðal annars endurhæfingu einstaklinga með hjarta- og lungnasjúkdóma, taugasjúkdóma, langvinna verki, gigtarsjúkdóma, geðheilsuvanda og efnaskipta- og offituvanda.
Hjúkrunarfræðingar starfa náið með öðrum fagstéttum að sameiginlegum markmiðum sjúklinga og hafa tækifæri til að nýta faglega þekkingu sína, sjálfstæði og frumkvæði.
Við bjóðum störf bæði í dagvinnu og vaktavinnu.
Dagvinna: Störf í þverfaglegum endurhæfingarteymum þar sem áhersla er lögð á einstaklingsmiðaða endurhæfingu, fræðslu, heilsueflingu og samhæfingu þjónustu.
Vaktavinna: Störf á legudeild með sólarhringsþjónustu þar sem hjúkrunarfræðingar sinna fjölbreyttum hjúkrunarverkefnum, styðja við endurhæfingarferli einstaklinga og stuðla að öryggi, virkni og sjálfstæði þeirra.
Bæði fullt starf og hlutastarf koma til greina. Æsskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Hvað hefur Reykjalundur upp á að bjóða ?
- Fjölbreytt og faglega krefjandi störf á sviði endurhæfingarhjúkrunar.
- Val um störf í dagvinnu eða vaktavinnu eftir þörfum starfseminnar og samkomulagi.
- Öflugt þverfaglegt samstarf og metnaðarfullan hóp samstarfsfólks.
- Tækifæri til að þróa faglega þekkingu og hæfni á sérhæfðu sviði hjúkrunar.
- Starfsumhverfi þar sem faglegt sjálfstæði, frumkvæði og samvinna skipta máli.
- Sveigjanleika í starfshlutfalli.
- Aðgang að heilsurækt, starfsmannaleikfimi og sundlaug.
- Mötuneyti er á staðnum.
Hæfniskröfur:
- Íslenskt starfsleyfi hjúkrunarfræðings frá Embætti landlæknis.
- Framúrskarandi samskiptaahæfni og jákvætt viðmót.
- Áhugi á endurhæfingu, heilsueflingu og einstaklingsmiðaðri þjónustu.
- Hæfni og áhugi á þverfaglegri teymisvinnu.
- Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður.
- Þekking eða reynsla af endurhæfingarhjúkrun er kostur.
- Þekking eða reynsla af geðhjúkrun er kostur.
Laun greiðast samkvæmt gildandi kjarasamningi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu, auk stofnanasamnings Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Reykjalundar.
Umsókn skal fylgja náms- og starfsferilsskrá ásamt afriti af prófskírteinum, starfsleyfi og sakavottorði.
Nánari upplýsingar um starfið veita:
Rúna Guðmundsdóttir, sviðsstjóri hjúkrunar - [email protected]
Erna Bjargey Jóhannsdóttir, sviðsstjóri hjúkrunar - [email protected]
Öllum umsóknum er svarað.
Vertu með okkur í að efla endurhæfingu og bæta lífsgæði einstaklinga.
Íslenska
Enska










