Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Hjúkrunarfræðingur Droplaugarstaðir

Óskað er eftir metnaðarfullum hjúkrunarfræðingi til starfa á Droplaugarstaði hjúkrunarheimili.

Unnið er í vaktavinnu, starfshlutfall og vinnufyrirkomulag er samkomulag.

Droplaugarstaðir er Eden vottað hjúkrunarheimili með áherslu á heimilislegt umhverfi og sjálfsákvörðunarrétt íbúa.

Droplaugarstaðir eru með virkt gæðakerfi og fengu ISO vottun árið 2020 fyrst hjúkrunarheimila á Íslandi. Í stefnu heimilisins eru öryggi, virkni og vellíðan íbúa, starfsfólks og fjölskyldna í öndvegi.

Við leggjum áherslu á metnað í starfi, fagleg vinnubrögð og samvinnu íbúa og starfsfólks.

Íbúar eru 84 á 4 deildum, allir búa í sérbýli með baðherbergi. Á Droplaugarstöðum er lítil sérhæfð MND deild með einungis fjóra íbúa þar sem veitt er sérhæfð þjónusta í einstöku starfsumhverfi.

Við erum staðsett í hjarta Reykjavíkur og stutt í almenningssamgöngur.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Skipuleggur og metur hjúkrunarþörf íbúa.
  • Sinnir og ber ábyrgð á almennum hjúkrunarverkefnum skv. hjúkrunaráætlun íbúa
  • Vinnum samkvæmt markmiðum, hugmyndafræði og gæðastefnu heimilisins
  • Vinnur samkvæmt gæðakerfi Droplaugarstaða
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Hjúkrunarfræðingur með íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Íslenskukunnátta á stig C1 í samræmi við samevrópskan tungumálaramma
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði í starfi, þolinmæði og jákvætt viðhorf
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Fríðindi í starfi
  • Reykjavíkurkort (sund/menningar og bókasafnskort)
  • Líkamsræktarstyrkur
  • Samgöngusamningur
Auglýsing birt26. október 2026
Umsóknarfrestur8. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Snorrabraut 58, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HjúkrunarfræðingurPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.ÞjónustulundPathCreated with Sketch.Þolinmæði
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar