

Starfsfólk óskast í umönnun
Heilsuvernd Vífilsstöðum óskar eftir að ráða starfsfólk í umönnun til starfa. Starfshlutfall er á bilinu 60% - 100% og um vaktavinnu er að ræða. Við leitum eftir einstaklingum sem hafa jákvæðni og góð samskipti að leiðarljósi og eru tilbúnir til að starfa í fjölmenningarstarfshóp okkar á góðum vinnustað.
Á Heilsuvernd Vífilsstöðum eru rekin biðrými fyrir þá einstaklinga sem lokið hafa meðferð á Landspítalanum og hafa ekki heilsu til að búa í sjálfstæðri búsetu. Þjónustan felur í sér að veita þeim skjólstæðingum sem dvelja hjá okkur þá umönnun, þjálfun og eftirlit sem þeir þurfa, á meðan þeir bíða eftir varanlegu búsetuúrræði.
Heilsuvernd er ört stækkandi fyrirtæki í heilbrigðisþjónustu sem hefur sérhæft sig í heilsu- og vinnuverndarstörfum, heilsugæsluþjónustu og heilbrigðisþjónustu fyrir aldraða.
Hjá Heilsuvernd leggjum við okkur fram um að skapa glaðlegt og gott vinnuumhverfi, auk þess sem við leggjum mikinn metnað í að veita framúrskarandi þjónustu.
- Styðja, leiðbeina og hvetja þjónustuþega
- Taka þátt í félagsstarfi, sbr. upplestri, handverki, leikfimi og hópastarfi
- Aðstoða við athafnir daglegs lífs s.s. bað, klæðnað og aðrar athafnir
- Samskipti við aðstandendur notenda
- Lágmarksaldur umsækjenda er 18 ára
- Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
- Frumkvæði og lipurð í mannlegum samskiptum
- Góð samskiptahæfni
- Þolinmæði og sveigjanleiki
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði
Enska
Íslenska


