Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur

Leiðtogi málm- og véltæknigreina

Vilt þú ‏efla hæfni starfsfólks í málm- og véltæknigreinum og vera hluti af leiðandi fræðslusamfélagi í íslenskum iðnaði?

Iðan fræðslusetur leitar að öflugum og framsæknum leiðtoga til að leiða fræðslu og þjónustu Iðunnar í málm- og véltæknigreinum. Leiðtogi hefur frumkvæði að eflingu og þróun fræðslu fyrir málm- og véltæknigreinar í samræmi við þarfir iðnaðarins. Hann annast þarfagreiningu og skipulagningu á fræðslu og ber ábyrgð á birtingu námskeiðslýsinga á vef.

Leiðtogi málm- og véltæknigreina vinnur náið með deildarstjóra deildarinnar Þróun þekkingar ásamt því að starfa með leiðtogum annarra iðngreina og öðru starfsfólki Iðunnar. Hann á einnig í samstarfi við leiðbeinendur og ýmsa hag- og samstarfsaðila.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þarfagreining og skipulagning á fræðslustarfi fyrir málm- og véltæknigreinar
  • Þróa leiðir til fyrirtækjafræðslu fyrir málm- og véltæknigreinar
  • Samstarf við lykilfólk í málm- og véltæknigreinum og uppbygging tengslanets
  • Fyrirtækjaheimsóknir og eftirfylgni verkefna
  • Samskipti við leiðbeinendur og aðra samstarfsaðila
  • Þátttaka í viðburðum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun og starfsreynsla sem nýtist í starfi
  • Góð þekking á málm- og véltæknigreinum og starfsumhverfi þeirra
  • Brennandi áhugi á fræðslu og þróun málm- og véltæknigreina
  • Frumkvæði, leiðtogahæfni, framsækni og metnaður til að þróa og efla fræðslustarf
  • Þjónustulund og framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum
  • Góð skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
  • Góð færni í íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti
  • Menntun í kennslufræði og/eða reynsla af kennslu er kostur
Auglýsing birt2. nóvember 2026
Umsóknarfrestur17. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Vatnagarðar 20, 104 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar