
Ferskar Kjötvörur
Ferskar kjötvörur er einn af stærstu kjötverkendum landsins en fyrirtækið sér matvörukeðjum Haga fyrir kjötvörum. Framleiðslan er bæði undir merkjum Ferskra kjötvara og verslananna sjálfra. Meðal sterkustu merkja Ferskra kjötvara eru Íslandsnaut og Íslandslamb.

Gæða- og umhverfisstjóri
Ferskar kjötvörur og Eldum rétt leita að öflugum gæðastjóra til starfa í nýju og glæsilegu framleiðsluhúsnæði. Fram undan er spennandi uppbygging með þróun nýrra framleiðsluferla og aukinni fjölbreytni í vöruframboði.
Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi sem vill taka virkan þátt í þessari vegferð og gegna lykilhlutverki í að þróa og móta gæðastarf félaganna til framtíðar.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Umsjón með rekstri og þróun gæðastjórnunarkerfis í kjötvinnslu.
- Þátttaka í uppbyggingu og innleiðingu nýrra framleiðsluferla með áherslu á matvælaöryggi, áhættustýringu og gæðakröfur.
- Umsjón og eftirfylgni með umhverfisstefnu.
- Umsjón með HACCP-kerfi og matvælaöryggi.
- Umsjón með frávikum, kvörtunum og úrbótum.
- Eftirlit með rekjanleika, merkingum og samræmi við matvælalöggjöf.
- Umsjón með sýnatökuáætlunum og hreinlætiseftirliti.
- Þátttaka í þróun nýrra vara með tilliti til matvælaöryggis, geymsluþols, merkinga og lagalegra krafna.
- Innleiðing og viðhald vottaðs stjórnunarkerfis.
- Framkvæmd og eftirfylgni innri og ytri úttekta.
- Samskipti við viðskiptavini og eftirlitsaðila.
- Fræðsla til starfsfólks um matvælaöryggi og umhverfismál.
Menntunar og hæfniskröfur:
- Menntun á sviði matvælafræði, matvælatækni eða sambærileg menntun og/eða haldbær reynsla af matvælaframleiðslu og matvælaöryggi.
- Góð þekking á HACCP, örverufræði matvæla og áhættustýringu í matvælaframleiðslu.
- Reynsla af innleiðingu nýrra framleiðsluferla og þróun matvæla er kostur.
- Þekking á gæðastjórnun matvælafyrirtækja/kjötvinnslu kostur.
- Þekking á umhverfisstjórnun fyrirtækja.
- Þekking eða reynsla úr opinberu matvælaeftirlit kostur.
- Þekking á matvæla- og/eða umhverfislöggjöf.
- Mjög góð færni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku.
- Mjög góð hæfni til að vinna sjálfstætt og í hópi.
- Frumkvæði í starfi og umbótahugsun.
- Góð almenn tölvufærni.
Umsóknarfrestur er til og með 3. nóvember n.k.
Auglýsing birt20. október 2026
Umsóknarfrestur3. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Álfabakki 2
Starfstegund
Hæfni
Hreint sakavottorðSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagUmsýsla gæðakerfaVerkefnastjórnun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Starfsmaður í veitingaeldhús
Ráðlagður Dagskammtur

Hvernig hafa húsin okkar það?
FSRE

Deildarstjóri gæðadeildar
Landspítali

Verkefnastjóri í fasteignum og viðhaldi
Landsnet hf.

Verkefnastjóri viðskiptakerfa
Advania

Verkefnastjóri viðburða
Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús

Verkefnastjóri – stefna og fjárfestingar
Landsnet hf.

Verkefnastjóri á Heimili fyrir börn
Velferðarsvið Mosfellsbæjar - Búsetukjarnar

Þjónustu- og gæðastjóri | Guest Experience & Quality Manager
Íslandshótel

Verkefnastjóri í Mannauðslausnum
Advania

Verkefnastjóri hönnunar
FSRE

Civil Society Fund Transnational Officer, Uppbyggingarsjóður EES
Financial Mechanism Office (FMO)