Háskólinn á Akureyri
Háskólinn á Akureyri
Háskólinn á Akureyri

Verkefnastjóri við Upplýsingaþjónustu og bókasafn Háskólans á Akureyri

Háskólinn á Akureyri auglýsir laust til umsóknar fullt starf verkefnastjóra þjónustudeildar við Upplýsingaþjónustu og bókasafn Háskólans á Akureyri. Við leitum að metnaðarfullum og fjölhæfum verkefnastjóra sem er jákvæður og sveigjanlegur og á auðvelt með að vinna í hóp. Starfið er fjölbreytt og krefjandi með áherslu á kennslu og fræðslu í upplýsingalæsi, þar á meðal ábyrga og markvissa notkun gervigreindar, rannsóknarstuðning og þróun þeirrar þjónustu við stúdenta og starfsfólk háskólans. Verkefnastjóri sér einnig um skráningu rannsóknarafurða starfsmanna háskólans í IRIS (Icelandic Research Information System) og tekur virkan þátt í samstarfi starfsfólks á sínu sviði og stefnumótun og umbótastarfi upplýsingaþjónustu og bókasafns.

Um er að ræða 100% starf með starfsstöð á háskólasvæðinu á Akureyri. Næsti yfirmaður er forstöðumaður Upplýsingaþjónustu og bókasafns.

Starfið er tímabundið til eins árs. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. janúar 2027.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sinnir kennslu og fræðslu í upplýsingalæsi fyrir stúdenta, doktorsnema og rannsakendur.

  • Skipuleggur námskeið og þróar kennsluefni og leiðbeiningar, þ.á.m. á vef.

  • Hefur yfirumsjón með og þróar rannsóknarþjónustu bókasafnsins fyrir m.a. rannsakendur og doktorsnema.

  • Veitir sérhæfðan stuðning við heimildaöflun, upplýsingaleit og notkun gervigreindar og vísindalegra gagnasafna.

  • Veitir ráðgjöf um opin vísindi (e. Open Science), þ.á.m. útgáfuferli og sýnileika rannsóknarniðurstaðna í opnum aðgangi, o.fl.

  • Hefur yfirumsjón með skráningu rannsóknarafurða í IRIS rannsóknarkerfið.

  • Veitir almenna upplýsingaþjónustu og þjónustu við notendur eftir því sem við á.

  • Tekur þátt í faglegu samstarfi, starfshópum og verkefnum innan og utan háskólans.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf sem nýtist í starfi.

  • Menntun í bókasafns- og upplýsingafræði er æskileg.

  • Háskólapróf á meistarastigi sem nýtist í starfi er kostur.

  • Kennslureynsla og próf í kennslufræði til kennsluréttinda er kostur.

  • Þekking eða reynsla af rannsóknum og/eða rannsóknarstuðningi er kostur.

  • Þekking og reynsla af háskólaumhverfi er æskileg.

  • Skipulögð og vönduð vinnubrögð, rík þjónustulund og góð samskipta- og samstarfshæfni eru mjög mikilvæg.

  • Hæfileiki til að tileinka sér nýjungar, frumkvæði og sjálfstæði í starfi.

  • Mjög góð færni í notkun upplýsingatækni og stafrænna verkfæra.

  • Góð færni í íslensku og ensku, jafnt töluðu sem rituðu máli.

Umsókn skal fylgja:

  • Greinargott yfirlit yfir náms- og starfsferil

  • Staðfest afrit af viðeigandi prófskírteinum

  • Kynningarbréf þar sem fjallað er ítarlega um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað hann telur sig geta lagt af mörkum til starfsins

  • Nöfn að minnsta kosti tveggja meðmælenda

Auglýsing birt23. október 2026
Umsóknarfrestur4. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Norðurslóð 202123, 600 Akureyri
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar