

Þróunarstjóri gervigreindar
Háskólinn á Akureyri hefur lagt ríka áherslu á að vera í fararbroddi í markvissri og ábyrgri nýtingu gervigreindar í námi, kennslu, rannsóknum og stjórnsýslu.
Háskólinn leitar að öflugum og framsýnum þróunarstjóra gervigreindar til að leiða þróun, innleiðingu og samhæfingu gervigreindar og stafrænna lausna innan háskólans.
Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni á sviði gervigreindar og stafrænna lausna. Í stefnu HA kemur fram að háskólinn viðurkennir gervigreind sem órjúfanlegan þátt í námi, kennslu, rannsóknum og stjórnsýslu til framtíðar. Starfið felur í sér faglega forystu, ráðgjöf, fræðslu og verkefnastýringu á sviði gervigreindar, í nánu samstarfi við stjórnendur, kennara, rannsakendur, starfsfólk og nemendur.
Næsti yfirmaður er forstöðumaður Kennslumiðstöðvar HA. Starfsstöðin er á háskólasvæðinu á Akureyri og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. janúar 2027.
- Leiða stefnumótun, innleiðingu og reglubundna endurskoðun stefnu HA um gervigreind
- Greina þarfir, tækifæri og áhættu tengda notkun gervigreindar og leggja fram tillögur um forgangsröðun verkefna
- Leiða undirbúning, prófun og innleiðingu samþykktra gervigreindarlausna í samstarfi við viðkomandi einingar
- Veita ráðgjöf og leiðsögn um ábyrga notkun gervigreindar í námi, kennslu, rannsóknum og stjórnsýslu
- Skipuleggja fræðslu og útbúa leiðbeiningar og hjálparefni fyrir starfsfólk og nemendur
- Tryggja að notkun gervigreindar í háskólasamfélaginu taki mið af þörfum og hlutverki HA ásamt því að fylgja kröfum um upplýsingaöryggi, persónuvernd og góða stjórnsýsluhætti
- Veita stjórnendum faglega ráðgjöf um stefnumótandi ákvarðanir hvað varðar notkun gervigreindar og stafrænt umbótastarfs innan HA
- Þróar og heldur utan um Borg sem er gervigreindarumhverfi HA
Auk faglegrar þekkingar þarf viðkomandi að búa yfir framúrskarandi samstarfs- og samskiptafærni og getu til að skapa samstöðu um markmið.
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Þekking og reynsla af notkun, þróun eða innleiðingu gervigreindar
- Víðtæk þekking og reynsla af stafrænni þróun og upplýsingatækni
- Leiðtogahæfni og reynsla af því að virkja fólk, byggja upp samstarf og skapa meðbyr með breytingum
- Greiningarhæfni, skipulagshæfni, frumkvæði og lausnarmiðuð nálgun
- Góð samskiptafærni og hæfni til að miðla flóknum viðfangsefnum á skýran hátt
- Góð færni í íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti
Æskilegt er að umsækjandi hafi:
- Reynslu af stefnumótun og innleiðingu breytinga
- Þekkingu á starfsumhverfi háskóla eða opinberra stofnana
- Þekkingu á persónuvernd, upplýsingaöryggi og regluverki um gervigreind
- Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi
Umsókn skal fylgja:
- Greinargott yfirlit yfir náms- og starfsferil
- Staðfest afrit af viðeigandi prófskírteinum
- Kynningarbréf þar sem fjallað er ítarlega um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað hann telur sig geta lagt af mörkum til starfsins
- Nöfn að minnsta kosti tveggja meðmælenda











