Míla hf
Míla hf
Míla hf

Sérfræðingur í stofnkerfum

Hefurðu áhuga á fjarskiptum og gaman af því að finna út hvernig hlutirnir virka? Við leitum að tæknisinnuðum liðsfélaga í rekstur og uppbyggingu stofnkerfa Mílu.

Í starfinu færðu að vinna með fjarskiptabúnað, greina bilanir og koma nýjum tengingum í gang. Verkefnin eru fjölbreytt og henta þér sem finnst gaman að leysa tæknilegar áskoranir, vinna með öðrum og læra nýja hluti.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Daglegur rekstur og viðhald stofnnets Mílu
  • Bilanagreining og viðgerðir
  • Uppsetning, gangsetning og prófanir á nýjum búnaði og samböndum
  • Þátttaka í viðhaldi og rekstri innri kerfa
  • Þátttaka í uppbyggingu og þróun fjarskiptainnviða
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun í verkfræði, tæknifræði, tölvunarfræði eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi
  • Áhugi á tækni og vilji til að læra og þróast í starfi
  • Þekking á IP-netkerfum, Ethernet og ljósleiðaratækni er kostur
  • Þekking á fjarskiptaumhverfi og reynsla af fjarskiptabúnaði og uppsetningu sambanda er kostur
  • Sjálfstæð, skipulögð og öguð vinnubrögð
  • Góð samskiptahæfni
  • Hæfni til að greina vandamál og vinna yfirvegað undir álagi
  • Hæfni til að miðla tæknilegum upplýsingum á skýran hátt
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
Fríðindi í starfi
  • 🔋 Miðlægar starfsstöðvar í Reykjavík með hleðslustæði
  • 🚿 Hjólageymsla með rafmagni og aðgangur að sturtum
  • 🥗 Mötuneyti á staðnum með salatbar og grænkerakostum
  • 💪 Metnaðarfullt starfsumhverfi
  • 🥳 Öflugt félagslíf á vegum starfsmannafélags og afþreyingarherbergi með billjarðborði og golfhermi
  • 🚲 Samgöngustyrkur til að styðja virka samgöngumáta
Auglýsing birt2. nóvember 2026
Umsóknarfrestur16. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Stórhöfði 22-30, 110 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar