Íslandsstofa
Íslandsstofa
Íslandsstofa

Viðskiptastjóri ferðaþjónustu

Íslandsstofa leitar að öflugum viðskiptastjóra til að styðja íslensk ferðaþjónustufyrirtæki í sókn á erlenda markaði. Starfið heyrir undir svið útflutnings og fjárfestinga.
Viðskiptastjóri ferðaþjónustu vinnur náið með íslenskum ferðaþjónustufyrirtækjum að því að efla viðskiptatengsl þeirra og skapa ný tækifæri á alþjóðlegum mörkuðum. Starfið felur meðal annars í sér að greina markaðstækifæri, byggja upp alþjóðleg tengsl, tengja íslensk fyrirtæki við erlenda samstarfsaðila og styðja við markaðssókn þeirra.
Áhersla starfsins er á fjarmarkaði, einkum í Asíu. Viðskiptastjóri ber ábyrgð á þróun og framkvæmd viðskipta- og kynningarverkefna á sínum mörkuðum, meðal annars þátttöku í alþjóðlegum ferðakaupstefnum og skipulagningu viðskiptaviðburða. Starfið felur í sér náið samstarf við fyrirtæki, hagaðila og alþjóðlegt tengslanet Íslandsstofu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Veita íslenskum ferðaþjónustufyrirtækjum þjónustu og stuðning í alþjóðlegri markaðssókn.

  • Byggja upp og viðhalda öflugum tengslum við íslensk fyrirtæki, erlenda ferðaheildsala og aðra mikilvæga samstarfsaðila.

  • Greina tækifæri á erlendum mörkuðum og byggja upp þekkingu og tengslanet á lykilmörkuðum.

  • Þróa og framkvæma viðskipta- og kynningarverkefni í samstarfi við fyrirtæki, samstarfsfólk og hagaðila.

  • Stýra undirbúningi, framkvæmd og eftirfylgni viðskiptaviðburða, vinnustofa og þátttöku í alþjóðlegum ferðakaupstefnum.

  • Kynna Ísland sem áfangastað og miðla upplýsingum um íslenska ferðaþjónustu til erlendra samstarfsaðila.

  • Vinna náið með ferðaþjónustuteymi Íslandsstofu, viðskiptafulltrúum erlendis og öðrum samstarfsaðilum.
  • Fylgja eftir verkefnum, meta árangur og miðla þekkingu um þarfir fyrirtækja, markaði og tækifæri.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.

  • Góð þekking á íslenskri ferðaþjónustu og alþjóðlegu viðskiptaumhverfi.

  • Reynsla af verkefnastjórnun, markaðsstarfi, viðskiptaþróun eða alþjóðlegu samstarfi.

  • Hæfni til að byggja upp tengsl og vinna með fjölbreyttum fyrirtækjum og samstarfsaðilum.

  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta og hæfni til að miðla efni skýrt í ræðu og riti á báðum tungumálum.

  • Reynsla af kynningum og framkomu fyrir hópa.

  • Öflug samskipta- og samstarfshæfni, þjónustulund og frumkvæði.

  • Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð, góð eftirfylgni og metnaður til að ná árangri.

  • Alþjóðleg reynsla, menningarlæsi og þekking á mörkuðum í Asíu er kostur.
Auglýsing birt31. október 2026
Umsóknarfrestur10. nóvember 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Bjargargata 1, 102 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar