Keflavíkurflugvöllur | Isavia
Keflavíkurflugvöllur | Isavia
Keflavíkurflugvöllur | Isavia

Verkefnastjóri Verkefnahúss

Hefur þú reynslu af því að leiða stór og flókin verkefni og vilt taka þátt í stafrænni umbreytingu Isavia?

Isavia leitar að reynslumiklum verkefnastjóra í Verkefnahús Stafrænnar stefnu og samhæfingar. Verkefnahúsið leiðir fjölbreytt verkefni sem ná þvert á fyrirtækið og styðja við stefnu, þróun og stafræna umbreytingu Isavia, allt frá stórum þverfaglegum langtímaverkefnum til smærri afmarkaðra verkefna.

Starfið felur í sér sjálfstæða ábyrgð á verkefnum, allt frá mótun og áætlanagerð til innleiðingar og eftirfylgni. Í því felst að skapa yfirsýn, leiða saman ólíka hagaðila og halda verkefnum á réttri braut hvað varðar markmið, umfang, tíma, kostnað og gæði.

Helstu verkefni

  • Stýra verkefnum af fagmennsku með áherslu á skipulagningu, áætlanagerð, framkvæmd og eftirfylgni

  • Taka virkan þátt í mótun og uppbyggingu verkefnaumhverfis

  • Móta og innleiða verkferla og vinnulag verkefnastjórnunartóla

  • Miðla þekkingu, reynslu og veita stuðning til annarra verkefnastjóra

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
    Framhaldsmenntun eða viðurkennd vottun á sviði verkefnastjórnunar er kostur

  • Víðtæk reynsla af stjórnun umfangsmikilla verkefna

  • Reynsla af verkefnastjórnun í upplýsingatækni er kostur

  • Mjög góð samskipta, samstarfs og greiningarhæfni og geta til að leiða fólk að sameiginlegum markmiðum

  • Frumkvæði, sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð

Starfsstöð er í Hafnarfirði.

Isavia er vinnustaður þar sem við sýnum hvert öðru virðingu og erum heiðarleg gagnvart sjálfum okkur og öðrum. Við gætum þess að viðhalda gleðinni, erum hugrökk og uppbyggileg og tökum ábyrgð á eigin frammistöðu. Saman náum við árangri.

Við bjóðum upp á hollan og góðan mat í mötuneytum okkar og farsímaáskrift. Allt starfsfólk hefur aðgang að heilsu- og líkamsræktarstöðvum sér að kostnaðarlausu.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Ásta Lára Jónsdóttir, forstöðumaður [email protected]

Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið.

Við hvetjum öll áhugasöm, óháð kyni og uppruna, til að sækja um.

Auglýsing birt16. nóvember 2026
Umsóknarfrestur29. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Dalshraun 3, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.GreiningarfærniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.VerkefnastjórnunPathCreated with Sketch.Verkefnastjórnun í upplýsingatækni
Starfsgreinar
Starfsmerkingar