Alva Capital ehf.
Alva Capital ehf.

Framkvæmdastjóri framkvæmda

ALVA Capital leitar að öflugum og reynslumiklum stjórnanda til að leiða og byggja upp framkvæmdastarfsemi samstæðunnar á vegum ALVA Framkvæmda.

ALVA hefur byggt upp fjölbreytt safn hótel- og annarra fasteigna og fram undan eru spennandi fasteignaþróunar- og framkvæmdaverkefni.

Við leitum að sjálfstæðum og lausnamiðuðum leiðtoga með sterka verklega þekkingu, viðskiptalega hugsun og víðtæka reynslu af stjórnun framkvæmda. Viðkomandi þarf að geta tekið frumkvæði, leitt framkvæmdateymi félagsins og tryggt skilvirka framkvæmd verkefna með áherslu á gæði, tíma og kostnað.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Dagleg stjórnun, rekstur og áframhaldandi uppbygging ALVA Framkvæmda.

  • Heildarumsjón með framkvæmdaverkefnum frá undirbúningi og hönnun til afhendingar.

  • Stjórnun framkvæmdateymis, verkstjóra og verktaka, ásamt verkefnaúthlutun, forgangsröðun og eftirfylgni.

  • Ábyrgð á tíma-, kostnaðar- og framkvæmdaáætlunum, verkbókhaldi og kostnaðareftirliti.

  • Innkaup, útboð, samningaviðræður, samningastjórnun og uppgjör framkvæmda.

  • Úrlausn verklegra og rekstrarlegra áskorana og virk eftirfylgni á verkstöðum.

  • Þróun og innleiðing skilvirkra vinnubragða, verkferla og kostnaðarstýringar.

  • Regluleg skýrslugjöf um rekstur, framvindu, kostnað og árangur til stjórnenda ALVA

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi, svo sem byggingarverkfræði, byggingartæknifræði, byggingarfræði eða iðnmenntun ásamt víðtækri reynslu.

  • Mikil verkleg þekking og reynsla af stjórnun byggingarframkvæmda.

  • Byggingarstjóraréttindi og/eða meistararéttindi í húsasmíði teljast mikill kostur.

  • Góð þekking á byggingaaðferðum, verklegum lausnum, teikningalestri og kostnaðaráætlunum.

  • Reynsla af verkbókhaldi, innkaupum og kostnaðareftirliti.

  • Reynsla af stjórnun starfsfólks og verktaka, forgangsröðun og eftirfylgni verkefna.

  • Framúrskarandi samskipta- og leiðtogahæfni.

  • Sjálfstæði, frumkvæði, góð dómgreind og lausnamiðuð vinnubrögð.

Auglýsing birt11. nóvember 2026
Umsóknarfrestur7. desember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Grunnfærni
Staðsetning
Laugavegur 182, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar