
Seðlabanki Íslands
Seðlabanki Íslands er sjálfstæð stofnun í eigu ríkisins sem heyrir undir forsætisráðherra. Markmið bankans er að stuðla að stöðugu verðlagi, fjármálastöðugleika og traustri og öruggri fjármálastarfsemi. Þá skal bankinn sinna viðfangsefnum sem samrýmast hlutverki hans sem seðlabanka, svo sem að varðveita gjaldeyrisforða og stuðla að virku og öruggu fjármálakerfi. Hjá Seðlabankanum starfar öflug liðsheild og leggur bankinn ríka áherslu á metnaðarfullt og hvetjandi starfsumhverfi sem einkennist af trausti, fagmennsku, þekkingu og framsækni.

Sérfræðingur í viðskiptaumsjón
Seðlabanki Íslands óskar eftir að ráða sérfræðing með reynslu af fjármálamarkaði, í deild viðskiptaumsjónar á sviði markaðsviðskipta.
Svið markaðsviðskipta hefur umsjón með innlendum peninga- og gjaldeyrismarkaði, annast viðskipti bankans við innlendar og erlendar fjármálastofnanir, sér um stýringu á efnahagsreikningi bankans, vörslu og ávöxtun gjaldeyrisforða, umsjón með lánamálum ríkissjóðs, auk heildstæðs eftirlits með fjárhagsáhættu á efnahagsreikningi Seðlabankans.
Viðskiptaumsjón er ein af fjórum deildum á sviðinu og sinnir m.a. frágangi viðskipta vegna lánamála ríkisins, gjaldeyrisviðskipta og markaðsaðgerða Seðlabankans.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Innlent og erlent verðbréfauppgjör
- Verðbréfavarsla
- Greiðslumiðlun í krónum og erlendum myntum
- Vöktun á kortauppgjörskerfi
- Bankaþjónusta fyrir ríki og ríkisstofnanir
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. í viðskiptafræði
- Viðeigandi reynsla af fjármálamarkaði
- Þekking á innlendum og erlendum greiðslu- og uppgjörskerfum er kostur
- Þekking á Swift greiðslu- og verðbréfaskeytum er kostur
- Færni í mannlegum samskiptum og árangursríkri teymisvinnu
- Nákvæmni, frumkvæði, drifkraftur og metnaður til að ná árangri í starfi
- Góð færni í að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku
Auglýsing birt20. nóvember 2026
Umsóknarfrestur30. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Kalkofnsvegur 1, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiMannleg samskiptiMetnaðurNákvæmniSwiftUppgjör
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Ráðgjafi viðskiptakerfa
Advania

Viðskiptastjóri í einkabankaþjónustu
Kvika eignastýring hf.

Bókari
Norðanfiskur ehf.

Fleet manager
Icelandair

Framkvæmdarstjóri - öflugt félag á byggingamarkaði
Fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu

Viðskiptastjóri hugbúnaðarlausna
Boðleið Þjónusta ehf.

Verkefnastjóri í samningateymi innkaupadeildar
Landspítali

Sérfræðingur í launaþjónustu hjá ECIT
ECIT

Svæðisstjóri fyrirtækja á Suðurlandi
Arion banki

Bókari
Keflavíkurflugvöllur | Isavia

Tæknilegur bókari
Sessor

Sérfræðingur í rekstrar- og sjálfbærniáhættu
Arion banki