Dropp
Dropp

Fjármála- og rekstrarstjóri

Dropp er ört vaxandi fyrirtæki með yfir 100 starfsmenn á háannatíma og miklar áætlanir um frekari uppbyggingu. Til að styrkja reksturinn leitum við nú að fjármála- og rekstrarstjóra sem tekur að sér daglega fjármálastjórn, rekstrargreiningar, almennan rekstur og viðskiptaþróun. Um er að ræða lykilhlutverk innan fyrirtækisins þar sem viðkomandi ber ábyrgð og vinnur sjálfstætt með umboð til sinna verka en náið með framkvæmdastjóra, teyminu í heild og ytri aðilum.

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfið hefur þríþættan tilgang:

  • Fjármálastjórn og uppgjör

    • Dagleg stjórn fjármála Dropp og dótturfélaga, þ.m.t. yfirsýn yfir bókhald, umsjón með greiðslum og innheimtu, launavinnsla og ársuppgjör.

    • Uppbygging og eftirfylgni með fjárhagsáætlunum, kostnaðargreiningum og rekstrarspám.

    • Tollamál og virðisaukaskattur: kortlagning, afgreiðsla og verklag tengt þessum málaflokki.

  • Rekstur

    • Yfirumsjón með daglegri starfsemi, þ.m.t. upplýsingagjöf, samninga- og kjaramál og samskipti við lykilviðskiptavini og birgja.

    • Uppbygging og rekstur KPI-mælaborðs, greiningar fyrir ákvarðanatöku og undirbúningur gagna og kynninga fyrir stjórnarfundi.

    • Eftirfylgni með þjónustustigi.

    • Innleiðing og umbætur á verkferlum, fjármálakerfum og innra eftirliti.

  • Viðskiptaþróun

    • Stuðningur við ný verkefni með greiningu og ráðgjöf.

    • Aðstoð við uppsetningu nýrra tekjustrauma, t.d. samningagerð, verðlagning, tilboðsgerð og áætlanir.

Viðkomandi þarf að hafa frumkvæði og metnað til að leita uppi tækifæri og loka málum.

Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt í sínum störfum og leggja mikið á sig við forgangsröðun, nákvæmni upplýsinga og tímanleg skil. Samskipti, greiningar- og samningafærni eru því mikilvægir partar starfsins, ekki síst til að tryggja hagsmuni Dropp með traustvekjandi framkomu gagnvart öllum hagaðilum.

Hjá Dropp starfar samheldinn hópur starfsmanna sem kappkostar að nýta rödd og þekkingu allra við borðið til að þróa félagið áfram. Við leitum því að aðila sem er í senn með metnað og auðmýkt til þess að starfa með fjölbreyttum hópi starfsfólks, stjórnenda, ytri aðila og viðskiptavina.

Við óskum þess að umsókn fylgi ferilskrá og kynningarbréf sem gerir skilmerkilega grein fyrir ofangreindri hæfni og reynslu. Vinsamlegast skilið ferilskrá og kynningarbréfi í einu og sama skjalinu.

Umsóknarfrestur er til og með 18. október nk.

Nánari upplýsingar veitir:
Kristján Pétur Sæmundsson, Brú Talent, kristjan@bru-talent.

Auglýsing birt7. október 2026
Umsóknarfrestur18. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Blikastaðavegur 2-8
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar