Vínbúðin
Vínbúðin
Vínbúðin

Framkvæmdastjóri – Vínbúðir og þjónusta

ÁTVR leitar að öflugum og framsæknum leiðtoga til að stýra Vínbúðum og þjónustu og leiða áframhaldandi þróun verslana, þjónustu og upplifunar viðskiptavina.

Starfið er lykilstaða í framkvæmdastjórn ÁTVR og felur í sér víðtæka ábyrgð á rekstri og þróun starfseminnar. Við leitum að reyndum stjórnanda með sterka leiðtogahæfni, góða rekstrarlega yfirsýn og skýra sýn á hvernig þróa megi verslanir og þjónustu í takt við breyttar þarfir og væntingar viðskiptavina.

Framkvæmdastjóri þarf að vera drífandi og umbótasinnaður, hafa hæfni til að leiða breytingar og nýta gögn og greiningar markvisst við ákvarðanatöku. Jafnframt skiptir miklu að viðkomandi nái vel til fólks, byggi upp traust og samstöðu og stuðli að hvetjandi vinnuumhverfi þar sem fólk fær tækifæri til að vaxa og ná árangri.

Starfssvið:

  • Daglegur rekstur og þróun Vínbúðanna með áherslu á góða þjónustu, ábyrga sölu og árangur.
  • Tryggja faglega, samræmda og ábyrga þjónustu við viðskiptavini.
  • Leiða og styðja fjölbreyttan hóp starfsfólks og stjórnenda með skýrri sýn og mælanlegum markmiðum.
  • Tryggja hagkvæman og árangursríkan rekstur í samræmi við stefnu, lög og reglur.
  • Áætlanagerð og greining gagna.
  • Þróun og eftirfylgni árangursmælikvarða.
  • Greining tækifæra til umbóta og aukinnar skilvirkni í rekstri.
  • Innleiðing og eftirfylgni umbótarverkefna.
  • Virk þátttaka í framkvæmdastjórn, stefnumótun og innleiðingu breytinga.

Menntunar- og hæfniskröfur 

  • Háskólapróf og framhaldsmenntun sem nýtist í starfi.
  • Farsæl og víðtæk reynsla af smásölu og rekstri, þ.m.t. áætlanagerð.
  • Árangursrík reynsla af stjórnun og leiðtogastörfum.
  • Framúrskarandi leiðtoga- og samskiptafærni.
  • Reynsla af breytingastjórnun og innleiðingu umbóta.
  • Góð færni í greiningu gagna, tölfræði og nýtingu gagna við markvissa ákvarðanatöku.
  • Árangursdrifni, frumkvæði og metnaður.

ÁTVR rekur 48 Vínbúðir um allt land. Stefna fyrirtækisins er að vera í hópi bestu þjónustufyrirtækja landsins og fyrirmynd á sviði samfélagsábyrgðar.

Við viljum að vinnustaðurinn sé lifandi og skemmtilegur og vinnum markvisst að því að auka ánægju starfsfólks.

Við leggjum áherslu á að starfsfólk fái tækifæri til að þroskast og læra nýja hluti. Þannig eflum við þekkingu og kraft fyrirtækisins.

Um fullt starf er að ræða. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsóknarfrestur er til og með 21.10.2026.

Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin

Nánar um ferlið:

Umsækjendur skulu senda inn ferilskrá ásamt kynningarbréfi á íslensku. Þar skal gera grein fyrir þeirri þekkingu, reynslu og hæfni umsækjanda sem nýtist til að sinna starfinu í samræmi við hæfniskröfurnar í auglýsingunni. Við ákvörðun um boðun í starfsviðtal verður sérstaklega horft til gæða umsóknargagna.


Umsjón með starfinu hafa Auður Bjarnadóttir ([email protected]) og Jensína Kristín Böðvarsdóttir ([email protected]).

Auglýsing birt8. október 2026
Umsóknarfrestur21. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Stuðlahálsi 2
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.ÁætlanagerðPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.FjárhagsáætlanagerðPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.GreiningarfærniPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.NákvæmniPathCreated with Sketch.Opinber stjórnsýslaPathCreated with Sketch.StarfsmannahaldPathCreated with Sketch.Stefnumótun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar